Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1944, Síða 7

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1944, Síða 7
Þeir sem björguðust, þar á meðal Dauen- hovver, fóru heim til Ameríku, en Melville, Nide- mann og Noros urðu eftir og hefja aftur leit um vorið 1882, þá finna þeir staðinn, þar sem de Long og síðustu félagar hans höfðu dregist til, áður en þeir dóu. Þar liggja lík þeirra, og við hlið de Longs liggur dagbókin, sem hann hafði með hetjudáð og styrk fært fram að and- látinu. Siðustu skýrslurnar í bókinni, þó stutt- orðar séu, eru hin átakanlegasta frásögn um síðustu daga þeirra. Hann segir frá hvernig þeir hver eftir annan, þrutu að kröftum og dóu. Hvernig læknirinn skírði Alexey, rétt áður en hann andaðist, og hvernig einn þeirra, Collins, á þessum örlagastundum, hélt upp á fertugsaf- mæli sitt. Stöðugt verða frásagnirnar fáorðari: Tvær síðustu blaðsíðurnar í dagbókinni eru þannig: Föstudagur h. 21. október 131. dagur: Kaack fannst andaður um miðnætti milli min og lækn- isins, Lee lést um hádegisbilið. Bænir lesnar yfir sjúkum, þegar við sáum að hann var að dauða kominn. Laugardagur h. 22. október 132. dagur: Of veikburða til að bera lík Lees og Kaacks út á ísinn. Læknirinn, Collings og ég komum þeim spöl frá, svo við horfum ekki á þau, síðan kom yfir mig mók aftur. Sunnudagur h. 23. október. 134. dagur: Allir mjög veikburða, sofa eða liggja allan daginn. Náði dálitlu brenni fyrir dimminguna. Las kafla úr texta dagsins. Tókum út í fótunum. Enginn skófatnaður. Mánudagur h. 25. október. 134. dagur: Hörð nótt. Þriðjudagur h. 25. október. 135. dagur. Miðvikudagur h. 26. október. 136 dagur. Fimmtudagur h. 27. október. 137. dagur: Iveson bugaðist. Föstudagur h. 28. október 138. dagur: Iveson lézt snemma um morguninn. Laugardagur h. 29. október 139. dagur Dressler dó um nóttina. Sunnudagur 30. október. 140. dagur: Bagd og Gertz dóu í nótt. Mr. Collins er í dauðanum. Melville og hjálparmenn hans grófu lík félaga sinna, þeir bjuggu til óbrotinn kross úr greinar- stofnum, sem þeir fundu og settu á gröfina. Þriðja bátinn færði Chipp, hans var gaum- gæfilega leitað, en aldrei hefir til hans spurst. Þrátt fyrir góðan útbúnað, dugnað og áhuga, varð árangurinn af leiðangri ,,Jeanetta“ full- kominn ósigur. Aðeins 13 af 33 mönnum komu heim aftur. Fundur þessara þriggja litlu íshafs- eyja, og aðrar athuganir, sem gerðar voru með nákvæmni og kostgæfni, var ekkert á móti því mikla takmarki, sem menn höfðu sett sér. En ósigurinn er líka jafn mikilvægt skilyrði fyrir framgangi mannkynsins eins og sigurinn. Það er í gegnum ósigur einstaklinganna, sem mann- kynið fær sína dýrustu reynslu. Vegna ósigurs- ins eru byggðar brýr til nýrra sigra, og ósigur de Longs hafði sína miklu þýðingu. I fyrsta lagi sást það, að þessi leið í Ishafinu er ófær skipum. Það er tilraun, sem fyr eða síðar varð að gera. Hún varð dýi’keypt, en svona dýrt getur það verið fyrir mannkynið að kom- ast eitt hænufet áfram í þekkingunni. í öðru lagi átti þessi ósigur sinn skerf í að leysa mál, sem þá var á döfinni, sem sé það, að stórir leiðangrar eiga ekki erindi inn á svæði heimskautalandanna hversu vel, sem þeir væru útbúnir. Hversu sterkt, sem skipið er væri það ofurselt magni ískyngisins, og hinn öflugasti leið- angur, gæti ekki haft svo miklar vistarbirgðir, að örugt væri fyrir hungurdauðanum. Einmitt hinn þungi útbúnaður, einkum bátarnir, urðu áhöfn „Jeanetta" hinn mesti farartálmi á baka- leiðinni. Maður getur ekki treyst á náttúrufarið, en verður að haga sér eftir því, eins og eskimó- arnir i byggðu héruðum heimskautalandanna hafa lært að gera gegnum aldirnar. Aðeins með því að læra af þeim og líkjast þeim, fleyja frá sér siðmenningu, lífsþægindum og byrgðum og lifa sem likast villimönnum, er hægt að ná ár- angri. Hinn ameríski sjóliðsforingi Frederick Schvvatda hafði nokkrum árum áður sýnt fram á þetta í fyrsta sinn, og það er á þann hátt, sem síðari landkönnuðir hafa náð mestum árangri, ekki síst Danir og nú á síðustu tímum Knud Rasmundsen og Lauge Koch. En í þi'iðja lagi hafði ,,Jeanetta“-ósigurinn mikla þýðingu. 1 júní og júli 1884, þremur árum eftir að ,,Jeanetta“ fórst, fannst merkilegur fundur á gagnstæðu hlið jarðai’innar. Það var við suðurodda Gi'ænlands, hér um bil úti fyrir Julianehaab. Gi'ænlenskir fiskimenn fundu á ís- jökum, sem voru á í'eki þar, mikið af fatnaði (Frökkum, buxum, skyi’tum, sokkum og eski- móahosum) rifrildi af tjaldi, matvælalista fest- ann á fjöl og undii'ski’ifaðan af de Long. Skrá yfir báta ,,Jeanettu“, dálítið af kvellhettum og fleix’a. Þetta hefir því í’ekið yfir pólarhafið ca. 3000 kvai’tmílur á þremur árum, meðfram aust- ursti’önd Grænlands og til suðui’odda þess. Það hafði með öði’um orðum haldið fei’ðinni áfram, og þar með var sannað, að það er stöðugt straumur þvei't yfir pólarhafið frá noi’ður Asíu til Grænlands. Á þessari reynslu byggði Friðþjófur Nansen með Fi’am-leiðangui’inn 1893—96, þegar hann gerði sitt fræga rek yfir Pólarhafið, og komst, eins og vitað er á hæstu norðurbreidd, sem þar VlKlNGUR 239

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.