Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1944, Side 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.09.1944, Side 23
Ákvæðavísur í síldarleysi. Eins og mönnum er kunnugt, var framan af sumri mjög slæmt útlit með síldveiði og þar af leiðandi búizt við fjárhagstjóni útvegs og sjómanna. Dagana 9. til 13. ágúst var bræla fyrir Norður- landi, og ræddu menn mjög að nú myndi öll von úti um írekari veiði. í veðri þessu brotnaði annar lönd- unarkraninn á bryggju S. R. N. á Siglufirði, meðan verið var að losa síld úr skipi. Festist hann undir lestaropinu. í síldarleysinu leitaði hinn nýi formaður í stjórn S. R., Sveinn Benediktsson, sem tekið hafði við for- mannsstarfi af Þormóði Eyjólfssyni í ársbyrjun, til ákvæðaskálds, sem vinnur hjá verksmiðjunum og bað skáldið að kveða síldina á land. Drógst nokkuð að skáldið kvæði vísurnar. En árla morguns 14. ágúst, er allar þrær verksmiðjunnar voru tómar eftir NA-bræluna, fór nýi formaðurinn ásamt framkvæmdarstjóra verksmiðjanna enn á fund skáldsins og kvað nú eigi mega dragast lengur að hann gerði ákvæðisvísurnar, því að svo áliðið væri orðið sumars, að það kæmi ekki að fullu gagni, ef síldin kæmi síðar. Kvað skáldið þá vísurnar fyrir hádegi 14. ágúst. Strax sama kvöld var svartur sjór af síld út af Fjörðunum og Flatey, og daginn eftir aUt frá Eyja- firði austur á Vopnafjörð, og síðar um allan sjó. Var þetta upphaf einnar mestu aflahrotu í sögu síldveiðanna. Að vonum hafa ákvæðisvísurnar vakið talsvert umtal á Siglufirði, þar sem þær urðu að áhrínsorð- um strax, er þær höfðu verið kveðnar. Og fara vísurnar hér á eftir: Það er helzt á Sveini að sjá, að sé hans gæfa þrotin. Síldinni bólar ekki á _ og annar kraninn brotinn. Austan brælu yfir sló; öll er að stöðvast driftin. Átulaust um aUan sjó eftir formanns skiftin. Vaktaslit og volæði, válegir sultarhljómar. Útgerðin í öngþveiti, allar þrærnar tómar. Réttar Árna reyndust spár, að rýrnaði mjöl og lýsi, og síldin brygðist öll í ár eins og stóð í „Vísi“. Þegar ríkti Þormóður, þá var í kvörnum malað, löngum síldar landburður og lítið um „Rauðku“ talað. „Hann, sem ræður himni og jörð“ og hnekkir hverju meini, VÍKINGUR láti nú víkur, flóa og fjörð fyllast handa Sveini. Hvert fúahrip, sem fer á sjó, fuUt skal hingað svamla, svo að fyUist sérhver þró og — „Síbería" gamla. Enginn stormur ýfi Dröfn eða þang á flesi; rokna síld á Raufarhöfn og reitu í Krossanesi. Þegar rætist þessi spá, er þarna frá ég greini, þá mun lýður líka sjá, aðlánið fylgir Sveini. M.s. EDDA Hinn 23. júní var nýju fiskiskipi hleypt af stokkunum í Hafnarfirði og hlaut það nafnið Edda. Eigendur þess eru hlutafélagið Einar Þorgilsson & Co., Hafnarfirði. Er þetta stærsta skipið, sem smíðað hefir verið í íslenzkri skipa- smíðastöð. Skipið er smíðað af Skipasmíðastöðinni Dröfn h.f., en yfir&miður var Sigurjón Einars- son, skipasmiður. Vélsmiðja Hafnarfjarðar h.f. framkvæmdi alla járnsmíði og annaðist niður- setningu véla, undir stjórn vélsmiðanna Jóhanns Ól. Jónssonar og Magnúsar Kristófers- sonar. Raflagnir annaðist Raftækjaverzl. Ekkó, og málningu Kristinn Magnússon, málarameist- ari. Edda er að stærð 184 smálestir brúttó og er því stærsta skipið, sem til þessa hefur verið smíðað hér á landi. Skipið er byggt samkvæmt nýjustu íslenzkum reglum um skipabyggingar, sem eru þær ströngustu er þekkjast á Norður- löndum, og er því mjög traust og vandað í alla staði. Byrðingar eru bönd úr eik, en vélarreisn og stjórnpallur úr stáli. Aðalvél skipsins er 378 hestafla Ruston & Hornsby Dieselvél. Ennfrem- ur eru í skipinu 85 ha. Dieselvél fyrir togvindu, og önnur 18 ha. fyrir rafal og dælur. I korta- klefa er komið fyrir dýptarmæli, miðunarstöð og talstöð. Mannaíbúðir eru alls fyrir 20 manna áhöfn. Teikningar allar gerði Hafliði Hafliðason, skipasmiður í Reykjavík. Eftirlit með smíði skipsins hafði Páll Pálsson, skipasmiður í Rvík, og eftirlit með niðursetningu véla Ólafur Ein- arsson vélfr., sem einnig gerði teikningar að stýrisútbúnaði skipsins. Edda er nú á síldveiðum. Á skipinu er nú 20 manna áhöfn. Skipstjóri er Sigurður Andrési- son, Reykjavík og 1. vélstjóri Skarphéðinn Þór- ólfsson, Seltjarnarnesi. 255

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.