Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1945, Blaðsíða 19

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1945, Blaðsíða 19
G. Ó. Erlingsson: Endurnýun fiskiflotans og sjómannafræðslan Mikið hefur undanfarið verið ritað og rætt um nauðsyn þess, að undinn verði bráður bugur að útvegun nýrra og nýtízku fiskiskipa til end- yrnýjunar hinum úr sér gengna og úrelta skipa- flota, sem afkoma landsins hefur verið byggð á í styrjöldinni og raunar alla tíð áður. Hið eina, sem beinlínis hefur verið tekin á- kvörðun um í þessu sambandi, er smíði Sví- þjóðarbátanna svonefndu og ef telja mætti fyrir- greiðslu um smíði nýrra báta innanlands. Það orkar tæpast tvímælis, að útvegun þess- ara skipa er engin fullnaðarlausn á því við- þetta fram í myrkur, en þá urðu þeir að hætta, vegna þess, að þá sáu þeir ekki lengur til að varast halann. Þeir vonuðu, að skatan mundi þreytast og fara um nóttina, en hún var kyrr, og spyrnti við skipinu eftir mætti, að því er virtist til að reyna að stöðva það. Um morgunirin útbjó Ahern fyrsti vélstjóri, ásamt fleiri mönnum af vélaliði skipsins, eins konar ífæru, sem var fest í stálstrengi frá þil- farsvindu skipsins. Þeir komu þessum krókum undir barðið á skötunni, þótt mjög væri viðsjár- vert að koma nálægt henni, því að hún var jafn- vel enn óárennilegri en daginn áður, og það var mesta mildi, að enginn skyldi bíða bana eða slasast hættulega undan höggum skötunnar. Á þennan hátt var hún bókstaflega rifin af skips- hliðinni af öllu því afli, sem til var í eimvind- unni. Hún barðist til hins síðasta, en þegar loks var búið að losa hana, hristi hún sig af krók- unum og staltk sér í hafið. Loks hafði hún beðið ósigur, og var sennilega lémagna eftir viður- eignina við stálófreskjuna, sem hafði að líkind- um rekizt á hana sofandi rétt undir yfirborðinu. En þó hafði hin sigraða að nokkru leyti sig- ur. Því að þetta er líklega eitt af mjög fáum atvikum á sjó, að einn einstakur fiskur valdi því, að stórt, fullhlaðið, aflmikið farmskip komi í höfn mörgum klukkustundum á eftir áætlun. ( Þýtt úr Esquire). fangsefni, sem liggur fyrir þjóðinni, að búa svo að sjávarútveginum, að hann verði ávalt fær um að gegna því hlutverki í búskap hennar, sem af honum verður krafizt í framtíðinni. Skip þessi eru öll smá og tiltölulega afkastalítil og ekki til þess fallin, að taka upp samkeppni við sjávar- útveg annarra þjóða. Til þess þurfum vér stór og fullkomin botnvörpuskip. Eins og áður er vikið að hér í blaðinu, kom Gísli Halldórsson, verkfræðingur, með ákveðin tilboð í smíði stórra og fullkominna bontvörpu- skipa frá amerískum skipasmíðastöðvum, snennna á þessu ári. Hann lagði tilboð þessi fyrir nýbyggingarráð og hafa þau verið gaum- gæfilega athuguð á mörgum fundum með út- gerðarmönnum og sjómönnum, án þess að at- hugun sú hafi leitt til þess, að ákveðin hafi verið kaup á skipum eftir þeim tilboðum. Eftir upp- lýsingum, sem ég hef fengið hjá Nýbyggingar- ráði, þykir varhugavert, að svo komnu máli, að semja um smíði þessara skipa, meðal annars vegna þess, að skipasmíðastöðvar þær, sem hér um ræðir, munu eigi hafa smíðað botnvörpu- skip áður, og eins vegna hins, að á þeim eru ýmsar nýjungar, sem ekki þykja hafa hlotið næga reynslu við fiskveiðar. Loks mun verð skipanna vera nokkur fyrirstaða, en hin ódýr- ustu þeirra verða tæplega undir hálfri þriðju millj. króna, þótt samið yrði um smíði allmargra skipa. Fyrir milligöngu sendiráðsins í Washington hefur ríkisstjórnin fengið uppdrætti að amerísk- um togurum, um 300 rúmlestir að stærð, frá skipasmíðastöð, sem smíðað hefur marga tog- ara, sem veiðar stunda við strendur Ameríku, og eru skip þessi af sömu eða svipaðri gerð og einhverjir þeirra. Skip þessi genga fyrir Diesel- vélum og hafa rafmagnstogspil. Eftir að nefnd manna hafði athugað gaum- gæfilega allar þessar teikningar, var tekið fyrir að semja spurningar um nothæfni nokkurra tog- ara frá Boston af þeirri gerð, sem teikningarnar eru af. Spurt er um dýpi, þar sem skip þessi stunda veiðar, sjóhæfni skipanna, hvernig VlKlNGU 11 123

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.