Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Page 1

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Page 1
SJOMAIMNABLAÐIÐ U í K IH 6 U R CTGEFANDI: FARMANNA- OG FISKIMANNASAMBAND ÍSLANDS XX. árg., 10. tbl. Reykjavík, október 1958 r~------------------------------------------ Hermann Jónasson f orsxtisráðhcrra boðaði innlenda og erlenda blaða- menn og útvarpsmenn, sem hér voru staddir 8. sept. s.l., á sinn fund í sambandi við landhelgismálið. 1 fundarlok sagði forsætisráðherrann m. a.: „Við bíðum eftir úrslitum lanáhelgismálsins og vitum hver ftau verða. Það er þrátt fgrir allt margt forsvarsmanna réttlætis í þessum heimi og þeir eiga beitta penna, máttug orð. Einhuga þjóð, sem hefir réttlætið sín megin og veit hvað hún vill, er og verður sterk, bótt lmn sé vopnlaus og smá. Að banna okkur að friða fiskimiðin er sama og að banna okkur að lifa í landi okkar. Við munum aldrei hvilca frá ákvörðun okkar um tólf mílna fiskveiðilandhelgi". k.___________________________________________/ Einhnga þjóð „Norður við heimskautsbaug á hrjóstugri eldfjallaeyju, sem heitir ísland, býr ein fámenn- asta þjóð veraldar, 165 þúsundir. — Það sem hefur gert þetta land elds og ísa byggilegt eru auðug fiskimið í fjörðum þess og flóum og á grunninu umhverfis landið. — Á Islandi eru engar námur neinnar tegundar, engir akrar, engar ávaxtalendur. Fiskurinn er 97% af útflutningi landsins og fyrir hann kaupa landsmenn margs konar lífsnauðsynjar, vél- ar, byggingarefni, eldsneyti o. fl. frá þeim löndum, sem þeir selja fisk. — Fiskiskip erlendra þjóða, í seinni tíð stórvirkir togarar, hafa sótt mjög á fiskimið Islend- inga og sópa þá oft burtu netum og línum íslenzkra báta. Fiskinum molcað upp. Annað er þó alvarlegra. Tækn- in til að vinna fiskinn og ná hon- um vex mjög hratt. Honum er blátt áfram mokað upp af hinum stóru togurum, — og hinum stóru togurum fer ört fjölgandi erlendis. Vísindamenn, erlendir og íslenzkir, hafa sannað svo að ekki verður með réttu um það deilt, að fiskurinn er að ganga til þurrðar á Islandsmiðum vegna ofveiði. Islendingar hafa horft á Ilermann Jónasson, forsælisráSherra. það með skelfingu að möguleikar þeirra til að lifa í landinu eru í yfrvofandi hættu. Hér er því að- eins um tvo kosti að velja: að stækka fiskveiðilandhelgina eða láta sér lynda að þjóðin glati efnahagslegu sjálfstæði sínu. Eg vek athygli á því að við takmörk- um nú einnig mjög veiði íslenzkra skipa með stórvirk veiðitæki inn- an tólf mílnanna. Sumar erlendar þjóðir segja við okkur, að við hefðum átt að færa út fiskveiðilandhelgina með samningum — og þá væntanlega með samningum við allar þjóðir. Hvenær mundu þeir samningar hafa tekið enda? Hvenær mundu allar þjóðir, sem eiga togara á Islandsmiðum, hafa samþykkt fyrirfram þá útfærslu, sem við þurfum á að halda? Þessi leið var ekki fær, enda hafa aðrar þjóðir yfirleitt ákveðið landhelgi sína með einhliða yfirlýsngu. Tíu ára tilranmir. Áður en við gripum til þeirra úrræða, sem nú hafa verið fram- kvæmd, reyndum við í 10 ár að fá teknar ákvarðanir á alþjóða- vettvangi um stærð fiskveiði- landhelgi. Við gerðum það á vett- vangi Sameinuðu þjóðanna. Þær vonir urðu loks að engu á Genf- arráðstefnunni. ViS gátum eklci beðið lenffiir. Á meðan við biðum og sáum fyrir að fiskstofnar okkar fóru minnkandi, tóku stórar þjóðir sér yfirráð yfir 12 mílna land- helgi og auðæfum á botni land- grunnsins langt til hafs, og það þótt tekjur af fiskveiðum séu að- eins örlítið brot af tekjum þess- ara þjóða. — Við íslendingar gátum ekki beðið lengur. Það var í augum okkar réttur og skylda íslendinga og lýst yfir 12 mílna VÍKINGUR 177

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.