Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 4

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 4
Björn Þorsteinsson sagnfr.: Básendaorustan 1532 Þann 11. marz 1532 hélt all- stórt kaupskip úr höfn í Ham- borg. Þetta var rammbyggt skip og skipshöfnin, um 30 manns, al- vopnuð byssum, sverðum, lás- bogum og öxum. Undir þiljum voru fimm fallbyssur fólgnar, þungir hólkar með víðum hlaup- um. öll útgerð skipsins gaf til kynna, að þær stundir kæmu, þegar hauskúpumerkið væri dregið að hún og beinagrindin með rýtinginn og rommglasið á 'lofti hlykkjaðist á þöndu stór- segli yfir morðóðum sjóræningj- um á stórum rosabullum með reifuð höfuð. En skipið hélt ekki venjulega leið sjóræningjasagna og víkinga, sigldi ekki í suður og vestur til þess að ræna gulli og gimsteinum nýfundinna landa, lieldur hjó það bárur Norður- sjávar og stefndi á leiðarstjörnu. En e. t. v. var gulls einnig að leita í þeirri átt, jafnvel örugg- cra gutls, en þess, sem reyfarar greina frá. Hafið er vorúfið að þessu smni, átt óstöðug og vindar snarpir. Áhöfn Hamborgarfars- nis liggur auðsæilega allmikið á. \ikum saman ann hún sér ekki b rildar, en siglir og beitir ósleiti- hga, og skipið þokast norður og vestur yfir Atla.ntshaf. Vörður s'endur stöðugt í körfunni á st órsiglunni og gefur nákvæma skýrslu um skipaferðir. En ekk- ert ber til tíðinda. Englendingar virðast liggja enn í heimahöfn- um, þeir eru ekki lagðir í „sjó- ferðina löngu“ að þessu sinni, nema nokkrar skútur, sem eru bomnar á miðin undan Færeyj- um. E. t. v. ætla þær ekki lengra. Hansafarið siglir djúpt undan eyjunum, og skipstjórinn, Ludt- kin Smith, kaupmaður í Ham- borg fer sjálfur upp í stórsiglu- Körfuna og tekur mið, þegar þær hverfa í sæ. Ludtkin Smith er maður um fertugt. Hann hafði nokkrum sinnum verið kaupmaður á Is- landsförum, en þetta er í fyrsta sinn, að hann er skipstjóri og foringi leiðangurs norður til eyj- arinnar. Áður en hann lét úr höfn í Hamborg, hét hann ráð- herra í borginni að vinna íslenzka höfn úr höndum Englendinga og drepa hvern þann, sem reyndi að hindra það áform sitt. Menn vé- fengdu ekki, að hann hefði full- an hug á því að standa við heit- ið, en hingað til höfðu Englend- ingar verið aðsópsmiklir á Is- landsmiðum og Þjóðverjum þungir í skauti. Fyrir tæplega hálfri öld hafði frændi Ludtkins Smiths siglt þessa sömu leið og lent í Hafnar- iirði á Islandi kvöldið fyrir alh’a- postulamessu eða 1. maí. Við Straum, sunnan fjarðarins, lá skipið Vighe frá Lundúnum. Um nóttina vígbjóst skipshöfnin, létti akkerum og sigldi til Hafn- arfjarðar. 1 morgunsárið greiddu Englendingar aðför að Hansa- mönnum óviðbúnum, skutu nokkra til ólífis, en tóku skipið herskildi. Þeir ráku skipstjórann, I.udtkin Steen, og nokkra Þjóð- verja með honum í skipsbátinn, en héldu 11 af áhöfninni um borð og sigldu með feng sinn til Ir- lands. Þar lentu þeir í Galway cg seldu skipið, farm þess og fangana 11 nafngreindum Irum. Kröfum og kærum fyrir þetta sjórán og mansal hafði ekki ver- ið sinnt til -þessa. Enn þá var veröldin lítið breytt og þræla- markaðir á brezku eyjunum. Vopnabúnaður Hamborgarfars- ins var því ekki ástæðulaus. Árið 1511 höfðu Englendingar tekið Hamborgarfar við Island og farið með það og áhöfn þess til Húllar, en þaðan slapp skip- stjórinn með miklum ævintýrum; hitt skipið tóku þeir í hafi. Árið 1514 tóku þrjú ensk her- skip Hamborgarfar í hafi á leið lil Islands, særðu skipstjórann og vörpuðu honum lifandi fyrir norð, og di’ápu nokkra af áhöfn- inni. Með skipið fóru þeir til Newcastle og héldu því í tvo mánuði. Að þeim tíma liðnum réðust Englendingar um borð í skipið, tóku stýrimann og hjuggu hann í stykki og vörpuðu þeim utbyrðis, einnig hálshjuggu þeir tvo háseta, en særðu 5 hættulega ’ ryskingum, sem urðu við of- beldisverkin. Þannig voru 15 af áhöfn skipsins drepnir, þegar bví var skilað að lokum með nokkrum hluta farmsins. Árið 1528 réðust 7 ensk skip á Hamborgarfar í höfninni að Rifi við Snæfellsnes, og tóku úr því öll vopn, byssur, púður og inatvæli og meginhlutann af farmi þess. — Ári síðar réðst Englendingurinn Jón Willers frá Lynn á Hamborgarfar norður í Bátalega og núverandi viti á Stafnesi. 180 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.