Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 5
Eyjafirði og sökkti því í hafið með 36 manna áhöfn. Að lokum birtast hvítar jökul- bungur yzt við sjóndeildarhring í norðri, og blásvört háfjöll teygj a sig upp fyrir hafsbrún hvert af öðru. Island rís úr hafi 5 grárri vormorgunskímu, kald- ranalegt en heillandi. Sjómenn töldu, að fjöll þess byggju yfir geigvænum töframætti, þau væru svo segulmögnuð, að þau soguðu skip upp að hafnlausum söndum og brytu þau í spón með því að draga að sér nagla úr byrðingum þeirra. Árlega fórust hér skip með ströndum fram, en samt sem áður hættu menn aldrei að sigla til íslands, ef þá hafði einu sinni borið þangað. f heima byggðum þeirra lék það ekki á tveimur tungum, að íslandsfarar yrðu fyrir gerningum; þar bjuggu seiðkonur í fjöllum. Hamborgarfarið hélt dj úpt vndan Vestmannaeyjum og stefndi fyrir Reykjanes. Nokkr- ar enskar duggur voru á leið inn til eyjanna, annars voru engin skip sjáanleg. Skipshöfnin hafði unnið kappsiglinguna til fslands að þessu sinni og gat valið sér verzlunarhöfn samkvæmt því á- kvæði íslenzkra laga, að sá á höfn, sem fyrstur lendir þar að vorinu. Á laugardagskvöldið fyr- . r páska hélt skipið að lokum inn á lónið að Básendum við Stafnes. Höfnin að Básendum er langt og mjótt lón eða gjögur, sem skerst vestan í Romshvalanes sannanvert. Siglingaleið inn á lónið er alllöng og tæp milli skerja, en fyrir innan er útfiri og þröng lega. Hér var því einu skipi gott að verjast. Fyrir sunnan Básenda skerast svipaðir básar inn í nesið eins og Kerlingarbás, Kirkjuvogsbás og Biasíubás og Þórshöfn. Frá sum- um þessum stöðum var dálítið út- ræði, og Básendar urðu verzlun- arstaður Englendinga á 15. öld, en Hamborgarar náðu höfninni sum árin seint á öldinni. Verzl- unarbúðir voru norðan hafnar- innar, og þar lagði Ludtkin Smith skipi sínu við fjögur akkeri og VÍKINGUR lét binda landfestar eftir því sem menn kunnu bezt. Daginn eftir voru heilagir páskar og guðsþjónustur í kirkj- im að Hvalsnesi og Kirkjuvogi, en menn Ludtkins Smiths unnu að því að skipa upp vörum og búa um skipið á legunni,en gerðu sér síðan glaðan dag. Þegar leið á daginn, sáu þeir, að skip kom af hafi og stefndi til Básenda. I eir tygjuðust þegar til varnar, ef óvinir væru á ferð, en komu- menn felldu segl og vörpuðu akk- erum fyrir utanhöfnina.Skömmu síðar var báti róið frá skipinu að Hamborgarfarinu, en á honum \ar enskur kaupmaður að nafni Thomas Haerlack, auk stýri- manns. Þeir Ludtkin tóku þeim íélögum vel og glöddu þá með niat og góðum bjór. Þeir fréttu, að hér var komið skipið Anna frá Harwich í Englandi, um 120 lestir að stærð og með um 80 nanna áhöfn. Englendingar höfðu lagt úr höfn þann 15. marz og hreppt mjög hagstætt veður I'eir báðu leyfis, að mega leggj- ast á höfnina, en þeirri málaleit- an tók Ludtkin Smith þunglega. Hann bað þá félaga að skila aft- ur til manna sinna, að þeim væri ráðlegast að leita sér annarrar hafnar, því að skip þeirra væri svo stórt, að nægur fiskur yrði ekki fáanlegur í bæði skipin að Básendum. Hann benti þeim á, að allar hafnir við ísland stæðu opnar hverjum sem vildi,og væru rjálsir verzlunarstaðir þeim, sem þangað kæmu fyrstir að vor- inu. Samkvæmt þeirri hefð sagð- jst Ludtkin eiga einkarétt til Básendahafnar að þessu sinni, en þar að auki hefði hann heitið Hinriki nokkrum Berndes, kaup- manni í Hamborg, að ætla honum pláss hjá sér í íslenzkri höfn, ef hann yrði áundan honum til landsins. Ludtkin Smith fór um það mörgum fögrum orðum, að hefðu Englendingar orðið fyrri til hafnar við ísland að þessu smni, þá hefði hann hvorki vænzt }:ess né krafizt af þeim, að þeir vikju úr höfninni fyrir sér, og nú ætlaðist hann til þess sama af Englendingum. Þeir Thomas Haerlack tóku vel boðskap Þjóðverja og kváð- ust ekki ætla að bíða boðanna, en sigla tafarlaust til Grindavík- ur, þegar hann gengi í norður og byr gæfi. Síðan kvöddust þeir með virktum, og héldu Englend- ingar út í skip sitt. Það var allt kyrrt og friðsamt við Básenda næstu nótt; enska skipið sýndi einungis ekki á sér neitt fararsnið. Á annan í pásk- um kom enn skip af hafi og stefndi til Básendahafnar. Þar biðu menn Ludtkins óþreyjufull- ir eftir því að sjá, hvers konar skip hér væri á ferð. Undir kvöld kom það að höfninni og varpaði þegar akkerum við hliðina á önnu frá Harwich. Hér var kom- ið frægt íslandsfar, Thomas frá Húll í Englandi. Því hafði lengi verið haldið til íslands og háð 181

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.