Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Síða 9

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Síða 9
reynir að finna hvar hann er staddur á hafinu. Harvard-háskólinn verðlaun- aði hann fyrir að skrifa þessa bók með því að sæma hann heið- ursgráðunni Master of Arts. Þetta var upphafið að löngum afskiptum hans af þessu mikla menntasetri. Sagan segiraðBow- ditch hafi komið til Boston á strandferðaskipi. Hann á að hafa farið til Harvard daginn, sem skólinn var settur, til þess að sjá viðhöfnina og hlusta á ræður, sem fluttar voru á latínu. Mikil var undrun hans þegar hann heyrði nafn sitt kallað upp frá ræðupalli og tilkynnt um þann heiður, sem hann hafði hlotið. Eftir að hinn mikli siglinga- fræðingur hætti sjálfur sigling- um, einbeitti hann sér við störf sín í landi á sama hátt og hánn hafði áður gert meðan hann var á sjónum. Fyrst varð hann for- stjóri vátryggingafélaga, síðar bauð Harvard-háskólinn honum prófessors stöðu. Hann afþakk- aði þann heiður, en þáði umsjón- armannsstöðu við skólann árið 1810. Árið 1816 var hann sæmd- ur heiðursnafnbótinni doktor í lögum, en síðan kjörinn formað- ur háskólaráðsins. Meðan hann gegndi því embætti, notaði hann viðskiptavit sitt til þess að rétta vð fjárhag skólans og koma hög- um hans á traustan grundvöll. Hann var leiðandi maður bæjar- félagsins og lánssamur kaup- sýslumaður þar til hann lézt, 16. marz 1838, þá sextíu og fimm ára gamall. Hinar miklu vinsældir, sem bók hans hlaut, má bezt marka af því hversu mikið seldist af henni. En hún var gefin tíu sinnum út áður en hann dó. 1838 til 1868 var hún gefin út af einkafyrirtæki, 1868 fékk bandaríski flotinn útgáfu- réttinn. Síðan hefur bókin öðru hvoru verið endurprentuð, aukin og endurbætt af hafrannsóknar- stofu Bandaríkjanna. Einmitt um þessar mundir er ný útgáfa að koma á markaðinn, 1300 b'lað- síður að stærð. Þar er um mikla framför að ræða frá hinni upp- runalegu Bowditch útgáfu, því Ályktanir frá F F S í Ályktun stjórnar Farmanna- og fiskimannasambandsins um landhelgismálið 27. 8. ’58, er í heild svohljóðandi: „Stjórn F.F.S.Í. telur ríkis- stjórn íslands sízt hafa gengið of langt með ákvarðanir sínar um 12 mílna landhelgi, þar sem það er skoðun F.F.S.Í. að fslend- ingum beri tvímælalaus umráða- réttur yfir öllu landgrunninu, eins og skýrt hefur verið látið í ljósi með ýmsum samþykktum á þingum sambandsins. Um leið og stjórn F.F.S.Í. þakkar öllum þeim er veitt hafa landhelgismálinu fullan stuðning frá öndverðu, heitir F.F.S.Í. á alla fslendinga, hvar í flokki sem þeir standa, að taka nú höndum saman og leiða landhelgismálið fram til sigurs með festu og ein- beitni, jafnframt skorar sam- bandið á alla sína félaga að veita landhelgisgæzlunni fyllzta full- tingi þar sem þeir geta því við komið“. Tilraunir til ásiglingar. Eftirfarandi ályktun var sam- þykkt á fundi í stjórn Farmanna- og fiskimannasambands íslands 27. sept. s.l. og send ríkisstjórn- inni: Stjórn F.F.S.Í. leyfir sér hér- með að vekja athygli á þeim sí- endurteknu fullyrðingum í ís- lenzkum dagblöðum, sem byggj- ast á upplýsingum frá yfirmönn- <$>----------------------------- auðvitað hefur hin nýja útgáfa að geyma allar uppfinningar raf- einda-aldar, sem teknar hafa ver- ið í notkun á venjulegum sigl- ingaleiðum, við neðansjávarsigl- ingar og siglingar um heim- skautasvæðn. Þrátt fyrir það ber bókin öruggt vitni þeim mikla snilling, sem var upphafsmaður hennar og um framlag hans til öruggra siglinga í 155 ár. Peabody-safnið í Salem geymir fjölda margt til minningar um Bowditch, þ. á. m. siglingafræði hans, áhöld o. fl. Að dómi Banda- um varðskipanna, að brezkir tog- arar gjöri þráfaldlegar tilraunir til þess að sigla á íslenzku varð- skipin, sem eru við varðgæzlu, með það fyrir augum að sökkva þeim. Það virðist liggja ljóst fyrir, að brezku herskipin, sem send hafa verið upp að íslandsströnd- um til þess að vernda landhelg- isbrjótanna, leggi blessun sína yfir að almennar réttarreglur á hafinu séu þverbrotnar, og jafn- vel meira en það; að foringjar herskipanna örvi til þess að slík óhæfuverk séu framin. Ásiglingar skipa eru alvarlegt vandamál, sem siglingaþjóðir heims hafa um áratugi beitt orku og fjármunum til að koma í veg fyrir. Ötal ráðstefnur hafa verið haldnar og ekkert til sparað tæknilega, til þess að draga úr slysum á sjó. Stjóm F.F.S.f. beinir þeirri á- skorun til ríkisstjórnar fslands, að hún krefjist yfirlýsingar af hálfu brezku ríkisstjórnarinnar, er leiði skýrt í ljós, hvort slíkar ofbeldishótanir og tilraunir til framkvæmda þeirra, séu gjörðar með vitund og vilja ríkisstjórnar Bretlands, eða hvort þær séu ein- ungis á ábyrgð ófyrirleitinna togara- og herskipsmanna Breta, þar eð slíkt er brot á alþjóðalög- um og öllu velsæmi, og stefnir mannslífum í bráða hættu. -------------------------—-----<s> ríkjanna var Bowditch mikil- menni, sem á það skilið, að sag- an varðveiti minningu hans. Hann á skilið þau ummæli, sem eru kjarninn í formála hverrar útgáfu, nefnilega: ,,Á meðan skip- sigla um sjóinn, á meðan komp- ásnálin bendir í norður og á með- an himinhnettirnir ganga eftir brautum sínum verður nafn Bow- ditch vel metið. Hann hjálpaði meðbræðrum sínum til þess að rata um höfin, hann var velgerð- armaður alls mannkynsins". VlKINGUR 185

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.