Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Page 24

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Page 24
♦--------------- Amerískur bankastjóri „skaut“ sig í filmstjörnu, og vildi giftast henni. Hann fékk leynilögreglumann til þess að grennslast eftir hegðun hennar. Skýrslan hljóðaði þannig: Viðkomandi hefir mjög gott orð á sér, umgengst heiðarlegt fólk, — en hið einasta grumsamlega við hana er að hún í seinni tíð hefir oft sést með bankastjóra nokkrum, sem mjög vafasamt orð fer af. * Á hóteli í Svíþjóð: 1 þessu rúmi hvíldi Óscar II. Ameríski ferðamaðurinn: — Lát- um það nú vera, en viljið þér ekki gjöra svo vel og skifta um lak. * Búið var að vígja nýja barnaskól- ann og skólastjórinn, sem einnig var nýr, sýndi börnunum kennslustof- urnar. Þegar þau komu inn íyiátt- úrufræðibekkinn, opnaði hann skáp sem í var beinagrind af manni. Þá gat Siggi litli ekki orða bund- izt: — Er þetta gamli skólastjór- inn? * Heillaskeyti: Heiður brúðurinni, heiður brúðgumanum. — Heiðar Jónsson. Tveir sjómenn tóku tal saman eftir inniveruna. — Ósköp ertu nið- urdreginn, Siggi minn, hvað gengur að þér? — Konan vill skilja, hún segir að ég verði að velja milli hennar og neftóbaksins. — Nú, hvernig fer það? — O, ég býst nú við að ég sakni hennar. * A Jæja, Jón minn, sagði læknirinn við gamlan bónda. — Ég vona að þú hafir fylgt ráðum mínum með að taka inn 3 pillur á dag og kon- jakk snaps áður en þú gekkst til hvílu. — Ojá, svaraði Jón gamli, — ég á eitthvað eftir af pillunum, en er hálfan mánuð á undan með kon- jakkið. * Dómari nokkur í Ameríku felldi nýlega mjög réttlátan dóm. Tveir strákar fengu að velja í milli 5 daga fangelsi og að blása upp sín tvö bíl- dekkin hvor, með munninum. Þeir voru teknir þegar þeir voru að hleypa lofti úr dekkjum á bíl, sem stóð á bílastæði. Nokkrir amerískir sjóliðar sem voru staddir í sænskri höfn fóru eitt sinn í kirkju. Þeir skildu víst lítið af ræðunni, og að messugjörð lokinni sagði presturinn nokkur orð og stóð þá upp einn maður, sem sat á fremsta bekk. Allir sjóliðarnir stóðu upp líka, til mikillar undrun- ar fyrir kirkjugesti. Presturinn skýrði þeim síðar frá að hann hefði tilkynnt skírn og beðið barnsföður- inn að standa upp. Sjómaður keypti eittsinnmjúk ar og fallegar skinnlúffur (hand- skjól) handa unnustu sinni í af- mælisgjöf. Hann bað afgreiðslu- stúlkuna að senda „lúffurnar" heim til hennar á afmælisdaginn. — En af misgáningi sendi af- greiðslustúlkan kvenbuxur. Með afmælisgjöfinni skrifaði sjómað- urinn unnustunni eftirfarandi bréf: Elskan mín! Ég sendi þér þessa smágjöf til þess að þú sjáir, að ég mundi eftir afmælisdeginum þínum, þó ég sé að heiman. Ég vona að það komi sér vel fyrir þig að fá þær, þær eru hlýjar nú í kuldanum og auðvelt að fara úr þeim og í þær. FRÍVA Ég var í vandræðum með að velja hentugan lit, en afgreiðslustúlk- an sýndi mér einar, sem hún var búin að nota í þrjár vikur, og það sá varla á þeim. Ég vissi heldur ekki hvaða númer þú not- ar — þó að það stæði mér auð- vitað næst að vita það — en af- greiðslustúlkan var á stærð við þig, og ég fékk hana til þess að máta þær, og þær pössuðu henni alveg. Hún sagði, að þú skyldir blása inn í þær, þegar þú hefðir notað þær, því þeim hætti oft til að verða rakar að innan við notk- un. Mundu mig, elskan mín, um að nota þær nú í kuldanum. Þinn elskandi Anton. 200 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.