Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1958, Blaðsíða 29
A VÍGASLÓÐ Framhaldssaga 4 Gregson setti upp þykkjusvip. — Of stoltur til að taka við þeim. Maður lítillækkar sig til að gefa þér þær, svo móðgast þú. Fjandi hart, þykir mér. — Taktu við þeim, svo skipstjór- inn reiðist ekki, sagði enski pilt- urinn. Þjóðverjinn hreyfði sig ekki. — Skipstjórann langar til að kasta þér fyrir borð. Hann hatar Þjóðverja. Og þar er enginn, sem hindrar hann í að gera það, ef hann tæki upp á því. Enski flugmaðurinn hafði gam- an að þessu og það vottaði fyrir glotti í öðru munnviki hans, er hann talaði. En Þjóðverjinn hreyfði sig ekki. — Hentu honum útbyrðis, skin- stjóri, ég skal engum segja. — Allt í lagi, sagði Þjóðverjinn og tók sígaretturnar. — Þakka þér fyrir. Mjög vingjarnlegt af þér. Þakka þér kærlega fyrir. — Bölvuð látalæti, sagði Gregson. — Hagaðu þér nú skikkanlega sagði enski pilturinn. Þú ert stríðs- fangi núna. Drengurinn hlustaði með athygli og allt, sem sagt var, var í augum hans mikilvægt, og við það að finna að menn gátu einnig hent gaman í návist dauðans, var sem skelfing- in vegna dauða Jimmys yrði létt- bærari að nokkru. Hann lét sinn tebollann við hvora hlið flugmann- anna. — Ég held ég geti ekki setið uppi, sagði enski flugmaðurinn. — Fjárans klúður. — Ég skal styðja þig, sagði Grep-- son. — Nei, sagði pilturinn. — Gefðu mér það heldur í skeið. Meðan Gregson lyfti varlega höfði hans og mataði hann á teinu með skeið, reis Þjóðverjinn upp við olnboga. Hann hélt sígarettunni o® bollanum í sömu hendi og starði út VlKINGUR yfir hafið í vesturátt. Drengurinn þóttist lesa í fasi hans flóttalönp- un, hvernig hann lét teið ósnert og lét sígarettuna brenna upp án þess að reykja hana. Hann vonaði að hann myndi reyna að flýja. Ef hann reyndi að flýja, myndi Greg- son drepa hann. Það væri stórkost- legt. Ef hann yrði drepinn, myndi drengurinn eignast sjónaukann. Það yrði líka stórkostlegt. Og þe^- ar hann kæmi heim að lokum, myndi hann bera hann um öxl sér og vera ögrandi stoltur á svip eins og mað- ur, sem snýr heim úr stríði með sigurtákn. Það tók að rigna, meðan hann stóð þarna og horfði á Þjóðverj- ann; smáir dökkir dropar féllu þétt og vættu þilfarið. Gregson leit til lofts. — Hann ætlar að rigna, sagði hann. — Bezt að koma ykkur nið- ur. í andliti enska piltsins var þján- ing, einkennileg þjáning, sem færði ungt andlit hans úr skorðum, svo það virtist gamalt. Drengnum datt ekki í hug að það gæti verið merki um ótta. Það var svo fjarri hon- um að tengja ótta við fullorðna menn. — Farðu með Messner niður sagði enski pilturinn, og það vott- aði fyrir glotti á andliti hans. — Gestir fyrst. — Ég fer með ykkur báða niður sinn í hvorum börum. — Takið hann niður fyrst. Ef þið missið hann, veit ég hvað gera skal. Gregson lagði höfuð énska pilts- ins varlega á þilfarið. — Komdu Snowy, sagði hann, og skyndilega fannst honum hann þurfa að hrósa drengnum. — Stórsnjall piltur þekkir allar flugvélar. — Ágætt, sagði flugmaðurinn. — Gott, Snowy litli. Hann brosti til drengsins. Gregson færði sig yfir til Þjóð- verjans, smeygði báðum höndum undir bak hans og tók að lyfta hon- um upp. Það var eitthvað óhugnan- lega undarlegt við fæturna. Þegar Gregson lyfti honum, héngu þeir máttvana eins og þeir væru ekki lengur hluti af líkama hans. Hann heyrði Þjóðverjann grípa andann á lofti. Gregson lagði hann aftur á þil- farið. — Rólegur, sagði hann. — Rólegur. Nú náum við í börurnar. Regnið streymdi úr loftinu. Drop- arnir féllu í andlit Þjóðverjans, sem lá á bakinu og dró andann í þung- um dráttum, og honum virtist fró- un í því að finna kalt regnið í and- lit sér. Gregsin sótti sjúkrabörurn- ar og lagði þær niður við hlið Þjóð- verjans. — Leystu þær sundur, Snowy, sagði hann. Snowy leysti þær sundur og stóð hjá meðanGreg- son lyfti herðum Þjóðverjans yfir a börurnar Hann sá Þjóðverjann kreppa hnefana. —- Farið varlega, sagði hann. — Varlega, fæturnir. Gregson sagði ekkert, en dró fæt- urna einnig hægt yfir á börurnar. Þá fórnaði Þjóðverjinn allt í einu höndunum tryllingslega og greip þeim síðan skyndilega fyrir andlit- ið og þrýsti þeim að því, og milli hvíta fingranna brutust hálfkæfð kvalaóp. Óp óvinarins snertu dreng- inn ekki mjög, því að hann stóð sem lostinn og starði á blóðpollinn, sem myndast hafði, þar sem fætur Þjóðverjans höfðu legið. Þjóðverjinn huldi andlitið í hönd- um sér meðan þeir báru hann nið- ur. Þeir lögðu hann á káetugólfið milli kojanna. í svip drengsins mátti greina vott af fullorðinslegu stolti; þetta var í fyrsta sinn, sem hann hafði tekið þátt í slíku. Hann stóð og virti Gregson og Þjóðverjann fyrir sér, hátíðlegur á svip. Hann var nú búinn að komast yfir áhrif- in af því að sjá blóð í fyrsta sinn. Hann var hrifinn í þennan heim siysa og þjáninga, sem var hlaðinn spennu og æsingi. Þjóðverjinn hélt höndunum stöð- u.gt fyrir andlitinu, og hreyfði þær ekki þaðan er þeir tóku hann af börunum, þótt hver hreyfing ylli honum ægilegum kvölum. Hann hafði þær til að dylja þjáninguna cg angistina í andlitinu. Uppi á þiljum rigndi. Enski pilt- urinn hafði dregið eina ábreiðuna upp fyrir höfuð sér og ábreiðurnar huldu hann nú allan, eins og hann væri þegar liðið lík. Hann svipti á- breiðunni frá andlitinu, þegar Greg- 205

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.