Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Blaðsíða 1
SJOMAIMIXIABJLAÐIÐ
UÍKIH6UR
ÚTGEFANDI: FARMANNA- OG FISKIMANNASAMBAND ÍSLANDS
XX. árg., 11.-12. tbl.
Reykjavík, nóv.-des. 1958
LEIÐARLJÓS YFIR HÖF OG HEIMA
Forsíðumynd þessa jólablaðs Víkings
getur verið táknmynd þess, sem jólin
boða, hafa flutt á liðnum öldum og flytja
enn: Yfir úfið haf, yfir fjöll og rjúkandi
sæ, ber leiftrandi ljósgjafi úr fjarskan-
um birtu.
Til hvers kom hann, sem í húmi hinnar
heilögu nætur fæddist? Hann kom til þess
að bregða birtu yfir dimman Heim. Hann
kom til þess að verða leiðarljós öllum,
sem um vegleysur hafs, víddir lofts og
jarðar fara.
Hann kom til þess en höfum vér þegið
ljósið hans þá leiðsögn, sem hann vill
öllum veita?
Á það er auðvelt að benda, hve kristinn
heimur hefur gengið víðsfjarri vegum
hans. Það er auðvelt að sýna fram á, hve
menn hafa stýrt yfir höfin eftir öðrum
stjörnum en stjörnunni hans. Vér vitum,
að einmitt af þessu stafa hörmulegustu
mistökin í lífi kynslóðanna, að ómælan-
legt magn tára hefur hrunið á jörðina og
hrynur enn, vegna þess, að vér stýrum
ekki skipi voru eftir leiðarmerkinu, sem
Kristur brá upp með fæðing sinni, lífi og
dauða. Og einnig það ætti oss að vera
ljóst, að aldrei hefur oss verið meiri þörf
á leiðarljósi hans en einmitt nú, þegar
vísindaafrek og tækní hefur lagt mann-
inum vald í hendur sem getur leitt til
ómælanlegra skelfinga mannlífi öllu, ef
hjartað, sem hendinni stýrir, elskar ekki
og virðir hugsjónir lávarðarins, sem í
jötu var lagður.
Þetta er alltof augljóst til þess, að opn-
um augum fái dulizt. En hvers vegna eig-
um vér að sjá þetta bezt á jólum?
Vegna þess, að í honum, sem fæddist
blásnautt barn í Betlehem, sjáum vér
fullkomnun þess, sem getur gætt mann-
lífið þeirri hamingju og fegurð, sem.vér
þráum. Enginn draumur hefur fæðzt svo
háleitur á jörðu, að hann rætist ekki í
persónu þessa óviðjafnanlega manns.
Engin von hefur fæðzt svo fögur og
djörf, að hún bendi ekki til hans, sem
heilög jól minna oss á. Engin hugsjón
hefur svo háleit vakað fyrir nokkurum
manni á jörðu, að hún klæðist ekki holdi
í persónu Krists. Þó verður oss sam-
fylgdin við hann erfið. Þó kjósum vér
önnur ljós til að stýra eftir.
Þú veltir þessari spurningu undrandi
fyrir þér, og á jólum beinist hún að þér
með öllum sínum þunga. í glitrandi ljós-
móðu jólakertanna blasir hún þér við
sjónum. í jólaguðspjalli og jólasálmum
talar hún til þín. 1 andblæ hinnar heilögu
hátíðar leitar hún hugar þíns og hjarta.
Þú virðir fyrir þér forsíðumynd jóla-
blaðsins. Skýjabólstrarnir eru eins og
rjúkandi brim, og þannig, milli rísandi
boða, yfir úfið haf, er mannkynið að
stýra veikri súð. En yfir vegleysum hafs-
ins ljómar ljós, sem vísar veg. Það er
ljósið hans, sem í heiminn kom um miðja,
myrka nótt. Það er Ijósið hans, sem getur
lýst í framtíð farsældar og friðar.
Gefi góður Guð öllum mönnum, á landi,
á lofti og á sjó, gleðileg jól.
Jón AuSuns.
VÍKINGUR
209