Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Blaðsíða 12
THE WORLD'S OIL
1955
18.900
7.100
.CAKIBSCAN I.8M
. AUSTRAL ASIA
j
HlOOLÍ lAJT H »00
SIGN ATURER
* nmavc
1
0STLIGE HAIVKUGLE
FIGURES OENOTE MILUONS OF LONG TONS
CRUDE OR CRUDE EQUIVALENT
(SIIMtKt #*V(0 ON O'l t C*» jOUtNAk*
Örn Steinsson:
Orku-vandamál
Stuðst við frásögn í MASKINMESTEREN
í löndum Vestur-Evrópu bera
menn nokkrar áhyggjur af fram-
tíðarorkuþörf landanna. Innan
Efnahagssamvinnustofnunar Ev-
rópu (OEEC) hefur það lengi
verið ljóst, að flutningserfiðleik-
ar á eldsneyti geta hvenær sem
er steðjað að. En það myndi hafa
hækkandi verðlag á orku í för
með sér, og þar af leiðandi hækk-
aðan kostnað á framleiðsluvör-
um landanna, sem gerir sam-
keppnisaðstöðuna lakari á heims-
markaðnum. Danir taka þessu
vandamáli með alvöru. Þeir hafa
komið upp hjá sér sérstöku orku-
ráði. Ráðið á að fylgjast gaum-
gæfilega með orkuþörf landsins,
og athuga alla möguleika, sem
til greina koma um sparnað á
öllu eldsneyti. Danir eiga engar
orkulindir í landi sínu og verða
því að flytja inn alla orku. Þeir
nota t. d. árlega 2000 milljónir
danskra króna til kaupa á elds-
neyti, er það nálægt 20% af öll-
um innflutningi þeirra.
Orkuþörf Dana, reiknuð í kola-
tonnum, hefur vaxið frá því á
árinu 1940, úr 5—6 milljónum
tonna upp í 12 milljónir tonna
árið 1958. Heimsnotkunin jókst
frá 1945 til 1955 um 65%, og
gert er ráð fyrir, að frá 1955 til
1975 muni notkunin aukast um
85%.
Verði sama þróun á orkuþörf
Dana, þurfa þeir eftir 14 ár að
eyða um 3 milljörðum króna til
orkugjafakaupa.
Hvers vegna óx orkuþörfin
svona ört? Þrennt kemur helzt
til greina: I fyrsta lagi fólks-
fjölgun, í öðru lagi vaxandi fram-
IVIynd I
Ljósi liturinn á kúlunum táknwr oliu-
notkunina, en dökki liturinn fram-
leiðslumagnið.
leiðni og í þriðja lagi aukin vel-
megun.
1 Bandaríkjunum er árleg elds-
neytisþörf hvers íbúa reiknuð í
kolatonnum um 8.7 tonn, í Eng-
landi 5.1 tonn, Danmörku 3 tonn,
í hinum Vestur-Evrópulöndunum
2.3 tonn og í öðrum heimshlutum
að meðaltali aðeins 0.6 tonn
(Rússland og önnur járntjalds-
lönd þó ekki talin með). I Asíu
og Indlandi er orkuþörf hvers
íbúa aðeins 0.1—0.2 tonn. Þeg-
ar íbúar Austurlanda, Afríku og
Suður-Ameríku auka framleiðni
sína verður orkuþörf heimsins
geysileg. Hvert verður verð elds-
neytisins þá?
Til að anna hinni ört vaxandi
eldsneytisþörf Vestur-Evrópu
hefur brennsluolía í sívaxandi
mæli verið notuð. Þessi stöðuga
aukning á olíunotkuninni á ekki
einungis rætur sínar að rekja
til fremur lágs olíuverðs, heldur
einnig til vöntunar á kolum. Á
mynd 3 má sjá muninn á kola-
framleiðslu Englendinga og notk-
VÍKINGUR
220