Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Síða 16

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Síða 16
hættu; því í nokkurri fjarlægð sást smáþorp Indíána, sem Barr- ow heitir og ísinn það þéttur og greiðfær, að auðvelt var yfir að fara fótgangandi. í nokkrar vik- ur hélt skipshöfnin kyrru fyrir í skipinu og hjóu daglega til að fyrirbyggja að stýrið festist í ísnum í von um að hann drifi aftur frá og létti feikna þrýst- ing, sem ógnaði skipinu. En ekki breyttist til batnaðar. Loks kall- aði skipstjórinn í talstöð sína á litlu flugstöðina í Nome, sex hundruð mílur í burtu og bað um að sækja 25 menn af skipshöfn- inni, en 14 mönnum ætlaði hann að halda eftir til að gæta Bay- chimo, þar til ísinn hyrfi aftur um vorið. Á meðan — þar sem ógerlegt reyndist að halda hita í vistarverum skipsins, byggði skipshöfnin sér kofa á ísnum. Nokkrum dögum síðar breyttist veður til batnaðar og skipsmenn litu með fögnuði dásamlega sýn: Tvær Stinson flugvélar, sem flugmennirnir Ross og Mirrow, starfsmenn Northem Transport- lines í Nome stýrðu, renndu sér léttilega úr skýjum ofan og sett- ust á slétta ísbreiðu skammt frá. Sjö menn af skipshöfninni tók hvor flugvélanna í hverri ferð og fluttu þannig alla af áhöfn- inni, sem ekki var þörf fyrir í skipinu. Hinir, sem eftir voru, hreiðruðu um sig sem kostur var á í kofanum og bjuggust um til langdvalar. Skömmu síðar breytt- ist enn veður og nú til hins verra. Kyngdi nú niður snjó með ein- dæmum langa hríð, sem veður- ofsinn, með væli sínu og góli, feykti saman í feiknstóra skafla. En norðurljósin stigu trylltan dans um helfrosinn dimmbláan himinn. Á hreinviðrisdögum héldu fé- lagarnir sér við með leikjum og ýmsu gamni; týndu saman reka- við á nærliggjandi strönd og öðru hverju felldu þeir hvítabjörn. Mjög sparlega þurfti að fara með eldsneyti; í kolaboxunum var ekkert umfram það sem nauð- synlegt var til að knýja skipið á heimleiðinni og varð því að varðveita, hvað sem öðru leið. 1 nóvember gerði veðurblíðu skyndilega og kom þá hreyfing á hina miklu ísfláka, sem fylgdi mikið háreysti, skruðningur, dynkir, drunur og brestir fer- legir. Um morguninn hinn 17. nóv- ember vöknuðu menn við að sjá íslausan opin ál, en skipið hvergi sjáanlegt. Mikil og þykk þoka lá yfir risavöxnum borgarísjök- unum, sem lyftu sér og sigu og „stigu ölduna", en sáust óglöggt vegna þokunnar sem yfir grúfði. Og menn óttuðust að skipið hefði sokkið um nóttina, malað og sundur kramið af miskunnarlaus- um fangbrögðum hinna voldugu ísfjalla. Cornwall skipstjóri fyr- irskipaði nú allsherjarleit í allar áttir, leitað var og aðstoðar Eski- móanna á ströndinni og í nokkra daga héldu skipsmenn leitinni áfram, hrasandi og dettandi í öðru hverju spori á hinum hála og hættulega ísi, en allt kom fyr- ir ekki; skipið var horfið. Nú kólnaði aftur í veðri og enn settist vetur konungur að á slóð- um yztu hafa norðursins. Hið horfna Baychimo var ef til vill fimmtíu—hundrað mílur í burtu og enn í greipum íssins, enginn vissi um það. Ekkert var hægt að gera til að bjarga skipinu, hinir þreyttu leitannenn héldu því aftur undir verndarvæng kofa síns á ströndinni og heim- ilis-hlýjunnar þar. Aftur hafði Comwall skipstjóri samband við flugstöðina í Nome og enn komu þeir Ross og Mirrow fljúgandi. Þeir könnuðu afarstórt svæði, en hvergi komu þeir auga á hið týnda skip. Það leit út fyrir að örlögin hefðu nú loksins „gert upp“ reikninga sína við hið traustbyggða en litla flutninga- skip og það farið til að „leggja sig“ við hliðina á fyrirrennurum sínum á botni hafsins. Og þar eð fyrirsjáanlegt var að frekari leit var árangurslaus, var flogið með skipstjóra og áhöfn til Nome, þar sem náðist í skipsferð suður á bóginn. Baychimo var nú alveg talið af sem tapað. Hudson Bay félagið þarfnaðist nú annars birgðaskips. Sumar gekk í garð og með því kynleg saga frá Norðurhöfum: Það var í júlímánuði, að sagt var að flokkur Eskimóa, sem voru að busla í húðkeipum sínum djúpt út af Wainwright, Alaska, hefðu séð skip í fjarska, sem virtist reka stjórnlaust fyrir sjó og vindi, en enginn reykur sjáan- legur úr reykháf þess. Þetta vakti athygli og forvitni hinna inn- fæddu og reru út að skipinu; ekkert sem lífs var sást á þilfar- inu, svo þeir klifu yfir borð- stokk til frekari rannsóknar. Það sem þeir fundu, gerði þá svo undrandi, að þeim fannst of gott til að vera virkileiki. — Mann- lausa skipið var með troðfulla lest af ómetanlegri skinnavöru. Þeir hlóðu nú húðkeipa sína vöru þessari sem mest þeir máttu og héldu til strandar, ákveðnir að sækja meira næsta dag. En morg- uninn næstan eftir var skipið — — — með öllu horfið. Nafn skipsins — sögðu þeir, var Bay- chimo. En um haustið kom önn- ur fregn þess efnis, að hið týnda skip hefði aftur sést og menn farið um borð í það, og enn meir af skinnavöru tekið. Fluttu nú dagblöð endilangrar strandlengju Kyrrahafs feitletraðar yfirskrift- ir, sögur og sagnir um dular- fulla draugaskipið á Norðurís- hafshöfum, sem nú, vitanlega var björgunarlauna-skip, hverjum sem heppnaðist að draga það til hafnar. En í þá daga var slíkt hægara sagt en gert. Staða skipsins, þeg- ar það sást í annað sinn, mun hafa verið langt inni á Beaufort- hafi um fjögur hundruð mílur austur af Barrow-höfða. Fá skip, og þau eingöngu lítil kaupskip, áttu leið meðfram eyði- legum og ömurlegum ströndum norð-vestur landsins, sem sífellt áttu í höggi við ísinn og ofviðrin og áhafnir þeirra höfðu fullt í fangi að bjarga sér úr háskanum, þó ekki væri draugaskipa leitað, sem þeirra vegna máttu sigla sinn sjó og skipti ekki máli hversu dýrmætan farm þau höfðu innan- borðs. En sjómenn sem þekktu þessar háskalegu siglingaleiðir, VÍKINGUR « * I J 224

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.