Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Síða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1958, Síða 30
Fiskveiðar í Noröursjó Fyrstu sögur sem fara af togveiðum á fiskimiðum I Norðuirsjó sýna bæði hctjudáðir og grimmd, drottinhollustu og sviksemi. I*ær segja frá miskunnarlausri baráttu manna við náttúruöflin og milli mannanna innbyrðis. Af fljótfengnum auði og sviplegum dauða. AIH þetta varð ívafið í iiina hraustustu kynslóð fiskimanna í vetr- öldinni. Manna, sem með framsækni sinni og græðgi eru nú að útrýma sjálfum sér. Forseti félags togaraeigenda lét þess getið, að brennsluolíu- kostnaður skipanna hefði aukizt úr fjórum upp í fimm milljónir sterlingspunda á ári. Yrði því ekki hjá því komist að hækka verðið um 6 pence á stone (rúm 6 kg.) komið að bryggju. Húsmæðurnar, sem voru marg- hrjáðar af sífelldum verðhækk- unum, hreyfðu mótmælum, og eitt félag þeirra lýsti yfir því — „að togaraeigendur greiddu í rauninni ekkert fyrir veiðina, þeir tækju fiskinn einfaldlega beint úr sjónum!“ En ekki meira um það. Eftir- farandi greinarkorn gefur til kynna að það sé þó ekki alltaf auðvelt verk að ná fiskinum úr sjónum. 1 byrjun nítjándu aldar voru fiskimið í Norðursjó í rauninni ókönnuð. Þá voru Hull og Grims- by og margar fleiri nú svo ný- tízkulegir fiskibæir varla komnir til sögunnar. Frá sveitaþorpunum Barking og Brixham komu fiskimennirn- ir, sem forustuna tóku um hag- nýtingu hinna auðugu fiskimiða í Norðursjó, en þeir voru síðar einnig fremstir í flokki um að gjöreyða þessum sömu miðum með ofveiði. Hinir sterkbyggðu „togarar" þeirra tíma með brúnu seglin stýrimann og 3 háseta eða við- höfðu 5 manna áhöfn. Skip- stjóra, stýrimann og 3 háseta eða viðvaninga, sem þeir munu hafa verið kallaðir. Viðvaningarnir munu oftast hafa verið munaðar- leysingjar, þurfamenn eða ungir afbrotamenn. Var aðstaða þeirra ólýsanlega erfið. Þeir urðu að fara á fætur kl. 4 á hverjum morgni. Elda fyrir skipshöfnina og hreinsa káetu og geymslur. Standa við stýri þegar búið var að kasta. Hreinsa og halda við siglingaljósum, dæla austri, gefa þokumerki þegar þess þurfti. Þeir urðu að gera að og þvo fisk- inn, og hjálpa til við að bæta netin. Þeir voru þrælar í bók- staflegum skilningi, því þeir voru algerlega á valdi skipstjór- ans, og fengu ekki bætur í neinni mynd. Margir skútuskipstjórar á þeim tímum voru hræðilegir menn, og gengu undir nöfnum svo sem „Fjörudýrlingurinn" — „Sædjöfullinn" og því um líkt. Heima fyrir voru þeir fyrirmynd annarra um guðhræðslu og gengu reglulega stífpússaðir til kirkju sinnar. En ekki voru þeir fyrr komnir á skipsfjöl, en harkan og miskunnarleysið náði yfirhönd- inni. Spörk og hnefahögg voru viðvaninganna daglegi skammt- ur. — Um hörku og miskunnarleysi skipstjóranna hafa myndazt þjóðsögur í sjávarþorpunum. Einn skipstjórinn var t. d. óánægður með það hvernig mat- sveinninn steikti fisk til kvöld- verðar. Þreif hann drenginn og stakk báðum höndum hans ofan í snarkandi feitina á pönnunni, svona til þess að sýna honum að- ferðina. Annar skipstjóri framdi þá óhæfu að binda viðvaning í vörpustrenginn aftan í skipinu fyrir þá sök eina að hann hafði blístrað á þilfarinu, en það var stranglega bannað. Þegar varp- an var dregin inn var drengurinn látinn. Suffolk skáldið George Crabbe segir í hinu fræga kvæði sínu „Peter Grimes“ sanna sögu af Þetta kort af Norðursjó sýrdr svæðið þar sem mest hefur verið fiskað á und- anfömum áratugum, og nú er að verða „dauður sjór“. hrottalegum Aldeburgh skip- stjóra, sem átti sök á dauða þriggja lærlinga er létust af illri meðferð, þrældómi og fæðu- skorti. 1 fiskiskýrslum frá árunum 1880—1892 má lesa um óhugn- anlegar staðreyndir. Talið er að nálega eitt þúsund lærlingar hafi lokið námi á togurunum, yfir eitt þúsund struku úr vistinni, en tvö hundruð drengir dóu á sjón- um. Á þessari öld hörku og tilfinn- ingaleysis, myndaðist kjaminn í heimsins hraustustu fiskimanna- stétt, og á sjókortum fiskimann- anna af Norðursjó, má sjá nöfn sumra hinna hörðu frumherja á fiskimiðunum svo sem: „Mark- ham’s Mole“, „Bruce’s Garden“ og Smith’s Knoll“. Margar sögur eru sagðar um hin ótrúlega auðugu fiskimið, sem kölluð eru „Silver Pits“. Haustið 1850 voru 4 Brixham togarar að veiðum á hinum fjöl- sótta Dogger Bank, og fluttu þeir veiði sína til Scarborough. Afli var góður og héldu þeir lengur úti en rétt var. Hrepptu þeir veð- ur stór og hröktust um miðjan Norðursjó. Þegar storminn lægði, komust þrjár skúturnar með skemmdan reiða og rifin segl inn til Scarborough. Nokkrum dög- um seinna komst svo f jórða skút- an til hafnar. Hafði hún tapað veiðarfærunum að mestu, en tek- izt að ná nokkru af sérlega væn- um kola í leyfarnar af netinu. VÍKINGUR 238

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.