Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 3
Ólafur Vignir Sigurðsson: Hugleiðingar um fiskileitarkort Reylcjavík í júnibyrjun 197U. Hr. ritstjóri. Aðeins nokkur orð varðandi „nýjustu og fullkomnustu fiski- leitartæki“. Nú, þegar endurnýj- un togaraflotans er svo langt komin sem raun ber vitni, gæti það virkað sem kaldhæðni að fara að fjalla um nýjungar á sviði fiskileitartækni eða endurbættar aðferðir til handa fiskimönnum til fiskileitar. Enda er í hvert skipti sem nýju skipi er lýst, klykkt úr með því að viðkomandi farkostur sé að „sjálfsögðu búinn nýjustu og fullkomnustu sigling- ar- og fiskileitartækjum“. En mörg eru þau vörumerkin sem blasa við þeim sem labba sig út í búð til að kaupa tæki og margur er í vafa um hvað taka skal. Ekki ætla ég að bera saman hin ýmsu vörumerki eða gerðir tækja, fjarri því, heldur vildi ég minnast á fáein tæknileg atriði sem að mínu mati liggja þungt á vogarskálinni þegar um er að ræða tæki til leitar að fiski sem heldur sig við eða nálægt botni og þá helst þau atriði sem mér finnst framleiðendur og umboðs- menn hafa ekki kynnt nógu vel væntanlegum notendum tækj- anna þannig að gagni mætti koma sem viðbótaratriði í þá mynd sem fiskimaðurinn gerir sér af fiskislóð hverju sinni varðandi fiskmagn og stærð fiskjarins sem inn á tækin kemur. Ennfremur hversu framleiðendur hafa van- metið fiskimanninn varðandi framþróun fisksjáarinnar. En fyrst leitartækið sjálft eða dýptarmælinn eins og svo marg- ir nefna tækið enn. Grundvallaratriðin eru ennþá hin sömu og fyrst er leitartæki voru byggð, þ. e. unnið eftir sömu grunnlögmálum hljóðfræð- innar og rafeindatækninnar og þá. Þessi atriði hafa fiskimenn vafalítið kynnt sér af bókinni Fiskileitartæki og notkun þeirra, sem gefin var út 1965. En með tilkomu nýrra efna í rafeinda- iðnaði hefir með árunum orðið viðráðanlegra að gera tæki. Vitað er að flest tæki, sem til þess eru smíðuð, skynja fisk. En það er hæfileiki þeirra til að skila upplýsingum sem gera kleift að meta stærð og greina á milli tegunda, sem máli skiptir. Til að meta stærð fiskjar þurfum við að greina endurvarp frá ein- stökum fiskum, einstaklingum. Mögulegt er að mæla styrk þess í mælieiningunni volt. Miðað við þau tæki sem algeng eru í dag er oftast um nokkur hundruð millivolt að ræða, en það skiptir ekki meginmáli, heldur það, að notast sé við hlutfall milli sendi- styrks í eins meters fjarlægð frá botnstykki og styrks hins mót- tekna endurvarps og tekin inn í myndina deyfing hljóðsins í sjón- urn vegna dýpis eða öllu heldur dreifingar geislans. Hvernig þetta er mælt mun ég minnast á í kaflanum um fisk- sjána. Ef við lítum á þau tæki sem í fiskiskipum okkar eru, þá sjáum við að algengast er að þau vinni í tíðnissviðinu 30—50 kílóhertz. Hægt er að velja á milli nokk- urra púlslengda. Sum bjóða upp á 1—2 millisekúndna púlslengd, önnur 0,5—2,5 millisekúndna og enn önnur 0,3—3,0 millisekúndur o. s. frv. Ég nefni þetta hér vegna þess að undir púlslengdinni er aðgreiningarhæfni tækisins kom- in, þ. e. hæfni þess til að greina einstaka fiska hvern frá öðrum eða frá botni sem sjálfstætt, ó- truflað endurvarp. Því styttri púlslengd, því meiri aðgreining- arhæfni. Ég nefni dæmi um hæfni Greinarhöfundur að starfi. Sveiflusjáin er efst á miðri myndinni. VÍKINGUR 147

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.