Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 25

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Page 25
Jónas Guðmundsson: MÉR DATT ÞAÐ í HUG SPARISJÓÐU R VÉLSTJÓRA Hátúni 4a (á horni Laugavegs og Nóa- túns) Afgreiðslutími kl. 09,30-15,30 og 16,30-18,00 Við bjóðum viðskiptavinum vorum upp á alla almenna þjónustu og næg bílastæði. Slmar: 17674 og 16593 Mér datt það í hug. Það fer ekki hjá því að manni finnst það oft vera sérstök ham- ing-ja að vera Islendingur. Það hlýtur að vera fjarskalega leiðin- legt til lengdar að vera útlendingur. Þurfa að anda að sér menguðu lofti daginn út og daginn inn og fara á mis við hið tæra loft og hafandi svo þetta hrognamál milli varanna sí og æ, eins og fjölfötlun. Ekki gætum við sætt okkur við þetta til lengdar. Islendingur þarf fyrst og fremst að ná and- anum og svo þarf hann að geta sagt meiningu sína umbúðalaust. Klukkan er ellefu í Danmörku núna, og hún er fjögur í New York, tíu um kvöld í Japan. Er það ekki dásamlegt að eiga heima í litlu fallegu landi, þar sem klukkan er ellefu þegar hún er ellefu. Þannig spyr hið danska skáld. Nú er ísland orðið ellefu hundruð ára, eða með öðrum orðum er það orðið eldra en Metúsalem, sem varð aðeins 969 ára, en hann var sonur Enoks, sem átti hann 65 ára. Metúsalem var hinsvegar 169 ára, þegar hann eignaðist Lamek, sem var faðir Nóa, sem smíðaði örkina frægu, sem varð okkur til bjargar. örkin hans Nóa tók allt inn að aftan og hefur þannig verið einskonar undanfari skuttogaranna, sem nú bjarga öllu Is- landi. Já, Metúsalem var afi þessa mikla útgerðarmanns og skipstjóra, sem við nefnum Gamla-Nóa. Ekki veit ég hverskonar stjórnarfar Gamli-Nói bjó við, en ef mönnum finnst allt vera að sökkva á þessum síðustu og verstu tímum, þá skulum við bara bera okkur mannalega og hugsa um syndaflóðið, þegar fjöllin sukku. Nú halda Islendingar hátíðlegt 1100 ára afmæli þjóðarinnar, og þeir minnast hins liðna, ýmist með hátíðlegum orðum, listum, eða með því að dansa á milbiki. Ósköp hefði allt verið skemmtilegra á Islandi, ef menn hefðu orðið jafn langlífir og þessir gömlu biflíu- karlar, því þá hefðum við getað veitt sjálfum Snorra Sturlusyni viðbótarritlaun í ár af söluskattspeningunum og ennfremur hefðum við látið hann fá svolítið af peningunum hennar Guðrúnar frá Lundi, ásamt Halldóri Laxness og Gunnari Gunnarssyni. Þeir eru frægustu skáld íslands. Svo hefðum við getað spurt hann, hvort hann hefði skrifað Egilssögu, eða hver það gerði og þá hefðu þeir Helgi á Hrafnkels- stöðum og Benedikt frá Hofteigi ekki getað haft neitt til að tala um framar og gætu ekki látið sjá sig á götu í margar vikur; annað hvort báðir, eða annarhvor þeirra. Snorri hefði ekki verið nema 796 ára um þessar mundir, og því líklega talsvert ern. VÍKIN(ÞUR 169

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.