Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Qupperneq 21
— Hvað Eimskipafélagið varð-
ar, þá er þetta staðreynd, en for-
ráðamenn félagsins hafa lýst því
yfir, að þessi fimm seríuskip, sem
Urriðafoss tilheyrir, séu keypt til
bráðabirgða, til að minnka leigu-
skipafarganið. Það er ekki hent-
ugur tími til að láta byggja skip
núna. Gert er ráð fyrir að þess-
um skipum verði breytt síðar,
milliþilfarið á að breytast og þau
verða styrkt.
Nú, þá er það einnig sjónar-
mið, að það er líka hagkvæmt að
hafa fleiri minni skip, en færri
stór, þar eð siglingar verða með
því móti tíðari og félagið telur
sig missa af farmi, ef ferðir eru
strjálar. Innflytjendur taka auð-
vitað fyrsta skip. Samkeppnisað-
staða myndi því versna. ,,Hrað-
ferðirnar“ sem svo eru nefndar.
eru skipulagðar, og verður þetta
skip í föstum ferðum milli Ant-
verpen og Reykjavíkur og fara
12—13 dagar í hverja ferð, sagði
Björn Kjaran skipstjóri að lok-
um.
Ilið nýja snmfélag einmnnn-
Ieiknns
Urriðafoss sigldi á miðnætti.
Það er fyrir þá sem lengi hafa
verið til sjós, tilkomuminna en
áður var, þegar millilandaskipin
láta úr höfn. Skipshöfnin á Urr-
iðafossi telur aðeins 11 manns.
Ef til vill hefði verið 25 manna
skipshöfn á slíku skipi á tímum
gufualdar og kola, 16—18 manns
fyrir tveim áratugum, en nú hef-
ur sjálfvirknin þokað manneskj-
unni af farskipunum og þau sigla
hraðar, oftar og staðnæmast
minna í höfnum, en þau gerðu
áður, og hafa færri menn innan-
borðs.
Þetta setur óhjákvæmilega
mark sitt á hið daglega líf. Far-
maðurinn gengur vaktir í hafi,
hann sefur einn í klefa, skipstj-
óri og háseti, hver einasti maður.
Lúkarinn, þessi þrönga, en nána
félagsmálastofnun er ekki leng-
ur til, þar sem einn klæddi sig
í einu á gólfinu, meðan hinir
lágu í fletunum og ræddu málin,
og menn sofa ekki einasta einir
í klefa, heldur matast þeir einir
líka, því vaktin stendur vörð,
aðrir sofa, og þannig hefur hin
félagslega aðstaða mannsins eða
samfélagið orðið mun daufara en
það var, þegar skipshafnir voru
fjölmennar. Þetta er tímabil ein-
manaleikans.
Björn Kjaran hefur lifað öll
þessi tímabil, sem rekja má frá
kolum til sjálfvirkni á öllum svið-
um og engir farmenn hafa lifað
eins litríkt tímabil í íslenskri
siglingasögu og þeir, sem það
gjöra.
J G
Vélstjórar og vélgœzlumenn!
Athugið tegundir tœkjanna sem eru í ykkar umsjó og hafið sam-
band við okkur ef þeirra á meðal eru einhverjar neðangreindar
gerðir sem þurfa eftirlit og viðgerð:
LUCAS - rafbúnaður alls konar
C.A.V. - dieselkerfi, rafbúnaður, forþjöppur o. fl.
SIMMS - rafbúnaður og dieselkerfi
BRYCE - dieselkerfi
HOLSET - forþjöppur (Turbochargers)
Varahlutir og viðgerðaþjónusta!
SlMI 81350 VERZLUNIN
SlMI 81351 VERKSTÆÐIÐ
SlMI 81352 SKRIFSTOFAN
VÉLA- & VARAHLUTAVERZLUN SKIPHOLTI 35 REYKJAVlK
HLOSSI
ss
F
VlKINGUR
165