Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Qupperneq 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.06.1974, Qupperneq 8
Dr. Gunnlaugur Þórðarson fékk sér indverskan búning og klæddist að hætti inn- borinna. Hér er hann á tali við innfæddan mann, sem ekur farþegum á reiðhjóli. Kynnisferð til Austurlanda Spjallað við dr. Gunnlaug Þórðarson, sem er nýlega kominn heim frá Austurlöndum, eftir að hafa kynnt sér viðhorf ýmissa þjóða þar til landhelgismálsins. Dr. Gunnlaugur Þórðarson er lesendum blaðsins að góðu kunn- ur vegna merkilegra ritgerða um lögfræðileg efni, er varða land- helgismálið og hann hefur birt í blaðinu. Dr. Gunnlaugur er ný- kominn úr ferð til Austurlanda, þra sem hann kynnti sér m. a. álit lærðra og heimskunnra lög- fræðinga á fiskveiðilögsögu þjóð- anna. Við hittum dr. Gunnlaug að máli nú fyrir skömmu og innt- um hann tíðinda af landhelgis- málinu. Varð hann góðfúslega við þeirri bón, að skýra okkur frá viðhorfum sínum nú. Rituð- um við eftir honum eftirfarandi: — Hver er staða Islands nú í landhelgismálinu, eftir að samn- ingar hafa teJcist við Breta, og samningur er ef til vill á næstu grösum við Þjóðverja? Auðlindalögsaga nœr okki ondi- loga til fiskveiða — Það veltur mikið á fyrir- hugaðri ráðstefnu í Caracas. Að vísu er ekki búist við að niður- staða fáist á þeirri ráðstefnu, en hafréttarráðstefnunni verður i haldið áfram í Vín á næsta ári og þá má gera ráð fyrir að ein- hver árangur náist. Þó eru menn p ekki á einu máli um að niður- staða fáist. Sumir óttast stóra fiskveiðilandhelgi, óttast að þar verði samþykkt 12 sjómílna landhelgi og þar með fisk- veiðilandhelgi eða 200 mílna auð- lindalögsaga, sem nær þó ekki til fiskveiða nema með vissum skilyrðum, sem gætu verið óað- gengileg fyrir okkur. Því hefði verið æskilegt að einbeita kröft- unum ekki síður að 50 sjómílna helgi, því ég hef oft gagnrýnt það, að við skyldum ekki strax í upphafi fara þá leið að viður- kenna lögsögu Alþjóðadómstóls- ins í landhelgismálinu. Við er- um elsta réttarríki heims og höf- um því meiri skyldur en aðrar 'þj óðir og ef við hef ðum rekið málið eins og vera bar og leitað eftir , viðurkenningu annarra þjóða og lagt þær á borðið fyrir Alþjóða- dómstólinn, svo sem 70% þjóða heims. Þá hefði aðstaða okkar gagnvart dómstólnum verið allt önnur og sigur okkar vís í land- helgismálinu. Það liggur þegar á borðinu viðurkenning stærstu þjóðar heims og það væri auðvelt að fá viðurkenningu flestra þjóða Afríku og Suður-Ameríku, en sá möguleiki firnist óðum, vegna að- gerðarleysis utanríkisráðuneytis- ins. — Ég hélt því fram í blaða- grein, þar sem ég gagnrýndi sinnuleysið í þessum málum, að við myndum einnig geta fengið viðurkenningu m. a. Asíuþjóða fyrir sögulegum rétti okkar. Vegna þessarar fullyrðingar VÍKINGUE 152

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.