Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Síða 33
— Heildarframleiðslan var í
kringum 18.000 tunnur, en um
17.000 fóru til útflutnings.
— Ef allt gengur nú að óskum
með að fá lóð, hvenær má reikna
með að skemman verði komin í
gagnið?
— Eins og málin horfa í dag
(viðtalið er tekið 2. desember), er
líklegt að hún verði ekki tilbúin
fyrir en í vertíðarbyrjun 1982. Þess
vegna má búast við því að við
verðum að notast við gamla lagið í
ár. Þó getur verið að við tökum
einhverja skemmu á leigu og
reynum að byrja, svona til að sýna
mönnum að okkur er alvara.
Aðild að Fiskveiðasjóði
— En ef við lítum aðeins nánar
á þessi frumvörp. Hver verða rétt-
indi grásleppusjómanna til dæmis
hjá Fiskveiðisjóði ef frumvarpið
um útflutningsgjald verður sam-
þykkt eins og það er núna?
— Mál Fiskveiðisjóðs er mjög
brýnt og þar hafa grásleppusjó-
menn alltaf verið afskiptir, þó svo
þeir hafi borgað í sjóðinn á ár-
unum 1964 til 1972. Á því tímabili
fengu þeir litla sem enga fyrir-
greiðslu í sjóðnum og áttu þar ekki
neinn fulltrúa. Hugmyndin er sú,
að um leið og við förum að borga í
Fiskveiðisjóð að nýju, njótum við
þar sömu réttinda og aðrir. Þó er
varla hægt að búast við því að
lánaaukning úr Fiskveiðisjóði
komi fram fyrr en eftir 1982.
En þá sjáum við líka hve mikla
peninga við höfum lagt í sjóðinn á
árinu 1981. Til að byrja með fer
megnið af fjármununum í
skemmubygginguna, því hún
verður sett á oddinn.
Verða brátt stofnuð
samtök sjómanna á
bátum undir
12 tonnum?
— En nú eru það fleiri en
grásleppukallar sem stunda sjó á
VÍKINGUR
bátum innan við 12 tonn og grá-
sleppuna er aðeins hægt að veiða
hluta úr árinu. Er ekki orðið tíma-
bært að stofna heildarsamtök sjó-
manna á bátum innan við 12 tonn,
án tilllits til hvaða veiðar eru
stundaðar?
— Jú svo sannarlega. Það hafa
komið fram hugmyndir um stofn-
un slíkra samtaka, sérstaklega
hefur verið rætt um það á norð-
austurlandi, þar sem menn stunda
sjóinn meira á stærri bátum, 7 til
11 tonna bátum, og gera ekkert
annað allt árið um kring. Þar kom
fram hugmynd um að stofna
samtök báta undir 12 tonnum. Fg
hef nú hugsað mikið um þetta. . .-
en alla vega er takmarkið núna að
byrja á grásleppuköllunum. En
því er ekki að neita að ef fram
heldur sem horfir, að við förum að
fá meiri fisk inn á firðina og á
grunnslóðir, þá eflist þessi at-
vinnugrein meira en nú er. En
stofnun S.G.H.F. er fyrsti vísirinn
Bjöm Guðjónsson, eða Bjössi f Holtinu eins og hann er oft nefndur, hefur stundað
grásleppuveiðar frá blautu barnsbeini.
33