Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Blaðsíða 34
að samtökum sjómanna sem
stunda vinnu sína á bátum undir
12 tonnum.
Við kljúfum okkur ekki
út úr einu eða neinu
— Samkvæmt frumvarpinu
ætla grásleppusjómenn að stofna
sinn eigin aflatryggingasjóð.
Hvemig undirtektir hefur það
fengið?
— Það hefur nú ýmislegt verið
sagt um það mál, svarar Guð-
mundur Lýðsson og brosir. Þetta
stingur í augum á mörgum. En
það er mörg rök fyrir því að grá-
sleppukallar vilji vera sér á báti í
þeim efnum. í fyrsta lagi þá borg-
urðu þeir í Aflatryggingasjóð allar
götur fram til 1972, þess vegna má
kannski segja að þeir hafi aldrei
verið í þessum sjóð og eru því ekki
að kljúfa sig út úr neinu, eins og
sumir hafa viljað halda fram.
Grásleppusjómenn eru aðeins
að fara fram á það að fá að stofna
sinn eiginn sjóð í friði. Þeir vilja
leggja þetta á sig, þetta eru þeirra
eigin peningar og þeir eru ekki að
fara bónleið í ríkiskassann, eða
eitthvað í þá veru. Nú förum við
bara fram á það við löggjafavaldið
að það segi já. Ég vísa á bug öllum
fullyrðingum um að við séum að
kljúfa okkur út úr einhverju sem
við höfum aldrei verið í.
— Eru menn kannski smeykir
við að þið sýnið þarna fordæmi,
að þið myndið ykkar eigin sjóð
sem verði etv. sterkari og betur
rekinn en stóri sjóðurinn?
— Kannski það, ha, ha! Við
verðum líka að athuga það, að
grásleppusjómenn eiga ekki
heima í kerfinu, þetta er svo sér-
stakt bæði hvað snertir veiðisvæði,
veiðitíma og annað. ef við hefðum
breytt um nafn á sjóðnum og sagt
að þetta væri til dæmis veiðisjóður
til að tryggja aflabrest hjá grá-
sleppusjómönnum. . .ja, þá hugsa
ég að enginn hefði hreyft mót-
mæum. Þannig er nú það.
Skipting bótasvæða
getur verið breytileg
— En þegar grásleppubændur
hafa nú komið sér upp sínum eiginn
aflatryggingasjóði, hvemig verður
skiptingu bótasvæða háttað?
— Það er mál sem verður að
athuga hverju sinni og í hverju
byggðarlagi fyrir sig. Þetta er svo
breytilegt frá ári til árs. Ef við lít-
um til dæmis á síðastliðið ár, þá
var veiðin á svæðinu frá Langa-
nesi og að Þórshöfn ákaflega mis-
jöfn. Vegna ríkjandi vestanáttar á
þessum miðum var afli góður hjá
Raufarhafnarbátum en mjög slak-
ur hjá bátum frá Þórshöfn og
Kóparskeri. Fiskigöngur geta ver-
ið misjafnar frá ári til árs og allir
þekkja duttlunga hafíssins.
— Fráþví 1976hafamenn þurft
að fá leyfi stjómvalda til grá-
sleppuveiða. Netafjöldi er líka
ákveðinn á hvem mann, 40 löng
(120 faðma) net á hvem einstak-
ling og einnig hafa verið settar
reglur um veiðitíma. Hvemig er
hljóðið í mönnum út af þessum
skömmtunum?
— Grásleppusjómenn eru yfir-
leitt ánægðir með veiðitímann.
Hann var minni áður, en fyrir
tveimur árum var bætt við viku
aftan og framan við hjá öllum, og
ég held að menn séu bara ánægð-
ir.
RauðmaginU utan við
lög og reglur
— En hvað með rauðmagann?
Mega menn leggja fyrir rauðmaga
hvenær ársins sem er?
— Já, já. Það eru ekki til neinar
reglur um rauðmagaveiðar.
— En hvað gera bændur ef
rauðmaganetin fyllast af grá-
sleppu áður en leyfilegur grá-
sleppuveiðitími er byrjaður? Verða
VÍKINGUR
Óskum eftir að komast í
samband við seljendur af
fiski.
Fiskvinnsla — Frysting —
Lýsisvinnsla — Útgerð.
Hraðfrystihús
Patreksfjarðar h.f.
Aðalstræti 100 —
-- 94-1307-1308.
34