Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Síða 36
Grásleppubátur lúrir í vör og snýr skutnum í veðurdrúngann. Þetta gæti allt eins verið
gráslcppukarl sem hallaði sér þama upp að skúrnum og biði rólcgur eftir að veðrið gengi
yfir.
hugsa um að fara út í meltugjöf í
stórum stíl. . .fá sér bara tank og
jafnvel að flytja grásleppuna í
gömlum steypubíl og láta hann sjá
um að hræra meltuna. Þetta er
fundið fé. Bara á síðust vertíð hafa
sjómenn hentnálægt 10.000 — tíu
þúsund tonnum af grásleppu í
sjóinn.
— En hefur eitthvað verið rætt
um það að samtökin færu útí það
að flytja inn veiðarfæri fyrir með-
limi sína?
— Jú, þetta hefur komið til
tals, en okkur finnst það ekki vera
36
ráðlegt eins og málum er háttað í
dag. Það er margir aðilar í þessum
innflutningi og á meðan við höf-
um ekki starfskraft til að sinna
þessu og ekkert húsnæði, þá held
ég að það verði að bíða. En þegar
skemman hefur verið tekin í
notkun breytist allt til batnaðar og
þá er aldrei að vita hvað við ger-
um.
Ódýrari tunnur en hjá
Síldarútvegsnef nd
Aftur á móti höfurm við flutt
inn tunnur. Á þessu ári fluttum
við inn rúmlega 7000 tunnur,
bæði plast og trétunnur og gátum
selt þær á hagstæðara verði til
okkar félagsmanna en Síldarút-
vegsnefnd. I haust fluttum við inn
6000 tómar trétunnur sem nú eru í
geymslu austur á Seyðisfirði. Hug-
myndimar að hafa saman verð
um allt land og er þá miðað við
þær hafnir sem Ríkisskip gengur
til, en samið hefur verið við Ríkis-
skip um að flytja tunnumar fyrir
fast verð á hvaða höfn sem skip
þess ganga til. Verðið á þessum
tunnufarmi verður mjög hagstætt,
en ekki er hægt að segja til um
endanlegt verð á þessu stigi máls-
ins.
— Af hverju er ýmist saltað í
trétunnur eða plasttunnur?
— Ja, það er von að þú spyrjir.
Það eru kaupendur sem ekki hafa
ennþá sannfærst um að plastið sé
eins gott og trétunnurnar. Síðast-
liðið vor gerði Rannsóknarstofn-
un fiskiðnaðarins athugun á þessu.
Þeir fengu hér um 10 tunnur af
hrognum upp úr sjó og gerðu
tilraun með hrognin fyrir okkur.
Plasttunnur ekki síðri
en trétunnur
Það er erfitt að segja við erlenda
kaupendur að hann Jón héma í
Götu salti alltaf í plasttunnur og
hrognin frá honum séu fyrsta
flokks. En ef ég kom með vís-
indalegan stimpil á plasttunnum-
ar og segi versgú.. .ja þá fyrst get-
um við farið við farið að selja. Það
hafa heldur aldrei verið til neinar
rannsóknir um það hvemig saltið
gengur í hrognin, hvernig verk-
unin gengur fyrir sig. Þetta hefur
nú verið gert og allt er á hreinu.
— Og það liggur sem sagt fyrir
að plasttunnumar séu eins góðar
og trétunnumar, eða hvað?
— Ekki síðri. Ef við söltum í
plast þá tryggjum við líka að
pækillinn leki ekki af tunnunum
eins og oft hefur gerst með tré-
VÍKINGUR