Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Síða 47

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Síða 47
um til æviloka. Marflærnar halda sig oft í hópum eða flekkjum og getur magn þeirra orðið mjög mikið. Fyrir kemur að fiskur er úttroðinn af þessum sviflægu marflóm og eru þær að sjá sem rauðsvartur grautur í maga. Ein algengasta tegund þessa dýrahóps hér við land er um 1 sm að lengd. Póláta Svo vikið sé að forvitnilegum hlutum eða sérkennilegum má nefna pólátuna. í fyrri grein var talað um rauðátur sem eru að jafnaði aðeins um 1 mm að lengd. Pólátan er rauðátutegund sem er sannarlega risi meðal sinna ætt- ingja því hún er um 1 sm að lengd, og ekki hefur efnið verið skorið við nögl þegar hún var sköpuð á þverveginn, því dýrið er hið patt- aralegasta. Eins og nafnið bendir til er hér um hánorræna tegund að ræða sem stundum finnst hér í nokkru mæli fyrir Norðurlandi. Marglyttur Fæstir myndu víst telja mag- lyttur til átu enda fá dýr sem leggja sér slíkt glot til munns. Eins og áður var drepið á nota fræðimenn gjarnan orðið dýrasvif í stað orðs- ins átu og er þá strangt til tekið átt við allt að kvikt í dýraríkinu, smátt og stórt, sem berst stjómlaust um upp í sjó. Marglyttumar verða því að flokkast í þennan hóp, þótt lítt séu fallnar til átu. Hrognkelsi virðast þó leggja sér ungar marg- lyttur til munns. Sumir hafa stað- hæft að skaparinn hafi búið til næsta fánýtan hlut, þar sem eru marglyttumar, því þessar vatns- kenndu verur komi lítið við sögu hinnar margnefnndu fæðukeðju, en lifi að mestu drottni sínum. Aðrir hafa bent á, að hér væru á ferð ryksugur hafsins, sem héldu því hreinu, þannig að örsmáar rotnandi dýraleifar, sem eru svo smáar að þær svífa um, nái ekki að menga sjóinn. VÍKINGUR Möttuldýr Fyrst farið er að tala um mar- glot skal til gamans minnst á fyr- irbæri sem margir kynnu að halda að ætti ættir að rekja til þess, enda fyllist þá allur sjór af gloti. Seildýr eru þau dýr sem hafa hrygg eða seil þ.e. hryggstreng. Til fylkingar seildýra teljast möttuldýr, tálkn- munnar og hryggdýr. Líkami hinna tveggja fyrstnefndu undir- fylkinga er næsta frumstæður. Sérstaklega á þetta þó við um möttuldýr sem eru nánast úr gagnsæju vatnsgloti eins og marg- lyttur utan tvö göt eru skrokknum þar sem sjór rennur í gegn og verður dýrunum til næringar. Þessum óásjálegu verum hefur maðurinn samt skipað þrepi nær sér en pílormum. Báðir hópamir hafa ekki af miklu að státa, en þá eru möttuldýrin sýnu glotlegri. Ástæðan fyrir þvi að maðurinn skipar þessum glotverum svo nærri sér í ættartöflu, er vísir af seil, eða hryggsúlu sem finnst hjá möttuldýrum á lirfustigi. Þau bera þó ekki gæfu til þess að þroska með sér þetta djásn, sem hverfur fljótlega, og dýrin komast aldrei af marglotsstiginu. Sum möttuldýr eru sviflæg en önnur sitja fastvax- in eins og plöntur allt sitt líf. Svif- lægu möttuldýrin sem hér eiga heima eru flest mjög smá. Suður við Evrópustrandir og suður í höfum lifa sviflæg möttuldýr sem eru allt að 8—10 sm á lengd. Mikill fjöldi getur orðið af þessum glotkenndu dýrum sem eru aflöng eins og pylsur. Á mörgum Evróputungum heita þessar skepnur „salpar“ (e: salps, þ: Salpen). Höfundur kannast ekki við sérstakt nafn á þessum skepn- um á íslenskri tungu, sem ef til vill er eðlilegt, því hér eru vart þeirra heimahagar. Orðið möttuldýr vís- ar til undirfylkingar, hvar fleira leynist, og leyfir höfundur sér því að nefna þessar skepnur sæsalpa. Sú tegund sem sést hér einna helst, er aflöng til endanna (sjá mynd) og var hér í töluverðu mæli í vor og fyrri part sumars. Þessi kvik- indi, sem eru lík smærri marglyttu, þegar þau eru saman í hóp, setjast mjög í troll. Sjálf dýrirn springa oft í trollinu og hluti af glotinu skolast burt, en tægjur úr innvið- um dýrsins setjast í möskva svo til vandræað getur horft. Undirritað- ur varð vitni að þessu á rannsókn- arbátnum Dröfn s.l. vor, er bátur- inn var við rækjuathuganir við Eldey. Þessi ófögnuður settist svo mjög í trollið að það var á pörtum 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.