Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Síða 48
Svifið sfast frá sjónum og lendir milli tveggja grisja er vefjast
á spóluna, sem liggur í formalíni.
Átuvfsir af HARDY gerð. Að ofan: Gamli Dettifoss með átuvisi í togi. Að neðan: Innri
gerð tækisins.
eins og strigapoki, nánast „skot- leggja sér „salpana“ til munns
helt“, eins og sagt er. Fáar skepnur enda eftir litlu að slægjast. Mikil
Skoðun og viðgerðir
gúmmíbáta allt árið.
GÚMMÍBÁTAÞJÓNUSTAN
Eyjagötu 9 Örfirisey
Slmi 14010
„salpa-ar“ voru árin 1957 og 1964.
Sumarið 1964 var mergð þessara
dýra svo mikil í Faxaflóa um tíma,
að til vandræða horfði. Fyrir kom
að dýrin söfnuðust fyrir kæli-
vatnsinntöku skipa og stífluðu
þau, svo stöðva varð vélar. Sagt
hafa mér menn sem sáu, að þess
hafi verið dæmi, að mergðin hafi
verið slík að sjórinn var þykkur
sem grautur á köflum. Héldu
flestir þá að hér væri marglot á
ferðinni en ekki nákominn ættingi
hennar.
Áturannsóknir
Ekki verður svo við þetta efni
skilið að ekki sé minnst stuttlega á
áturannsóknir eða athuganir á
dýrasvifi Til þess að safna átu
verður að nota fínriðna netháfa
eða einhver þau veiðitæki sem sía
átusallann úr sjónum. Á hverju
vori fara fram á vegum hafrann-
sóknastofnunarinnar átuathugan-
ir þar sem sýni eru tekin með háf-
um. í íslenskum sjó eru og stund-
aðar athuganir á þessu sviði með
öðrum tækjum. Þessar athuganir
fara fram árið um kring og eru í
raun breskar þótt íslenskir aðilar
komi nokkuð við sögu. Hér er átt
við athuganir breskra hafrann-
sóknarvísindamanna í N-Atlands-
hafi, sem stundaðar eru með svo
nefndum átuvísum dregnum af
kaupförum á áætlunarleiðum.
Nokkru fyrir stríð byijaði Haf-
rannsóknastofnunin í Edinborg að
preifa sig áfram með slík tæki, og
árið 1938 dró flaggskip Eimskipa-
félagsins, gamli Gullfoss, slíkt til-
raunatæki nokkrar ferðir milli ís-
lands og Skotlands. 1950 þróuðu
Skotar þessi tæki og létu áætlun-
arskip draga þau um Norðursjó,
og víðar. Árið 1957 fóru skip
Eimskips reglulega að draga átu-
vísa milli íslands og Skotlands og
nokkru síðar milli íslands og Ný-
fundnalands.
Tækin eru dregin á fullri ferð á
um 10 m dýpi og hver spóla endist
48
VÍKINGUR