Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 53

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 53
aðeins lónað frá bryggjunni í tíu mínútur og erum komnir út að Mjóeyri þegar stór torfa kemur á dýptarmælinn. Það er slegið af og kveikt á astikkinu. Þegar Magnús skipstjóri hefur snúist í kríngum torfuna svolítla stund, er kallað klárir. Öll ljós eru slökkt og baujan látin fara. Stuttu seinna er byijað að kasta. Kojan verður að bíða. Eins og í gamla daga í október er umhorfs á Eskifirði líkt og tíminn hafi hlaupið aftur um 25 ár. Öll fiskverkunarhús eru undirlögð síldartunnum. Þar sem hægt er að finna sléttan blett í þessum bæ, hefur verið komið fyrir tunnum. Það eru tunnur í húsasundum og með fram allri ströndinni. Gúmíklætt fólk á öll- um aldri er að pækla, aðrir að velta tunnum eða slá til. Díxillinn er aftur orðinn tákn verkafólksins. Það hefur orðið að ráðai að ég fái að fara út með Sæljóninu frá Eskifirði til að fylgjast með veið- unum og þefa af þessu óvænta ævintýri. Sæljónið er 150 tonna stálbátur smíðaður á Akureyri fyrir nokkrum árum. Þegar hér er komið sögu hafa lagnetabátar veitt upp í kvóta sinn og veiði þeirra stöðvuð. Aðeins hríngnóta- bátar meiga veiða síld þessa dag- ana. Sæljónið er að landa. Sýnd veiði... Þegar nótin er hálfnuð erum við komnir upp á þriggja faðma dýpi og álitamál hvort vitinn á Mjóeyri lendir inni í nótinni eða ekki. Magnús skipar að halda í vírinn. Þama er hreinn botn svo öllu á að vera Óhætt. Bíll kemur akandi fram að vit- anum og ég sé tvo stráka stíga úr úr honum. Þeir standa í gulri ljós- keilunni og veifa til okkar flösku, um leið og þeir spræna utan í bíl- inn. Ef ekki væri hávaðinn frá spilinu þegar verið var að snurpa, hefði ég getað kallað til þeirra. Þetta eru einkennilegar síld- veiðar. Nú getur maður staðið aftur á og hrópað í land milliliða- laust. En fyrir nokkrum árum var síldin svo lángt undan landi, að ógerníngur var að ná sambandi við land í gegnum talstöðina þegar bátarnirvoru á miðunum. Þegar byrjað var að draga, komu nokkrar síldar í gaminu. Hún var inni! Gleðin og spenníngurinn sem fylgir því að vera á sOd er sá sami hvort sem maður er að veiða inni á fjörðum eða norður við Jan May- en. Áður er hálfnað var að draga hafði ég nagað neglur mínar upp í kviku . . . ég sem hafði verið í naglabindindi í marga mánuði! En ekkert er öruggt á síld. Fljótlega kom í ljós að nótin var rifin. Það var bölvað bæði í hljóði og upphátt. í stað gleði yfir góðri veiði komu nú vonbrigðin. Sem betur fór var ekki nema tíu mínútna keyrsla upp að bryggju þar sem gert yrði við nótina. í þessu kasti kom ekki aðeins sOd í garnið. Við fengum lOca gaddaskötur og skarkola, þorsk- titti og ufsaseiði og hluti sem ég hef aldrei vitað að feingust í sOd- arnót; eitt stykki smurningsfötu og brennivínsflösku ... tóma. En sOdin, þessi gáfaða skepna utan úr djúpinu, hafði auðvitað fundið rifuna á nótinni og synt þar út. Þegar búið var að draga var farið beinustu leið í land og nótin tekin upp á bryggju. Þannig fór um sjóferð þá. Að gera út á gjöf Það var bræla fyrir utan svo að flotinn hélt sig inni á Reyðarfirði í skjóli fyrir veðri og vindum. Eftir að búið var að gera við nótina var aftur haldið út. Um allan fjörðinn lóðaði á síldardreif niðri við botn- inn, en lítið var um góðar torfur. í talsntöðinni töluðu menn um að síldin væri sennilega komin suður fyrir; þegar veðrið geingi niður mætti sennilega finna hana suður undir Papey eða í Buktinni. Innan um síldarflotann lónuðu þrír smábátar frá Eskifirði. Þeir höfðu það hlutverk að vera eins- konar aðstoðarbátar hjá flotan- um; skipstjórar þeirra þekktu botninn á firðinum betur en munstrin á gólfteppunum heima hjá sé og þess vegna gátu þeir sagt til um hvort óhætt væri að kasta á einum stað eða öðrum. Þessir bátar voru líka feingnir til að kippa í síldarbátana og draga þá út úr nótunum ef með þurfti. í staðinn feingu þeir síld. Einn „snaparinn“, eins og þessir bátar voru kallaðir, hafði „snapað“ um 50 tonn hjá síldarbátum sem feng- ið höfðu svo stór köst að þeir gátu ekki tekið allan aflann. Þeir gera út á gjöfina þessir, sögðu strákarnir og hlóu. Demantar í fjörunni í þá þrjá daga sem ég var um borð í Sæljóninu fórum við aldrei leingra en úti á miðjan Reyðar- fjörð. Og allstaðar var síld, þótt erfiðlega geingi að ná henni. Einn daginn hljóp hún saman í torfur inni í botni Reyðarfjarðar. Við köstuðum rétt fyrir framan bryggjurnar og feingum fjörtíu tonn af demantsíld sem farið var með í söltun til Eskifjarðar. Á meðan við vorum að draga þama fyrir framan bryggjumar á Reyðarfirði, hvarflaði að mér sú hugsun, hvort síldin héldi áfram að gánga heim að eldhúsgluggum Reyðfirðínga eftir að þeir væru búnir að fá stóriðju í fjörðinn, eins og nú er mikið talað um. Kannski verður svo komið síld- arárið mikla 1997 að Reyðfirðing- ar verði að láta sér nægja gulan verksmiðjureyk fyrir augunum, í stað síldarbáta? VÍKINGUR 53

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.