Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 60

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.1980, Page 60
Frá formannaráðstefnu F.F.S.Í. Kjaramálin Formannaráðstefna Far- manna- og fiskimannasambands íslands haldin dagana 22. og 23. nóvember 1980 lýsir yfir fullum stuðningi við kröfur farmanna og heitir á samninganefnd félaganna, að fylgja þeim eftir af fullum þunga. Jafnframt átelur ráðstefnan harðlega seinagang og þvergirð- ing viðsemjenda gegn því að ganga til raunverulegra samn- ingaviðræðna við félögin. Einnig vill ráðstefnan benda stjómvöldum á þá óheillaþróun, að á sama tíma sem fjöldi skipa er seldur úr landi fjölgar stöðugt er- lendum leiguskipum á vegum skipafélaganna, sem annast vöru- flutninga til og frá landinu. Formannaráðstefna Far- manna- og fiskimannasambands íslands beinir því til samninga- nefndar sambandsins að yfir- vinnubanni því sem nú stendur verði ekki aflétt fyrr en gengið hefur verið til móts við kröfur sambandsins um öryggismál og lífeyrismál og félagslegar umbæt- ur. Ráðstefnan fordæmir þá ein- stæðu og smekklausa árás forustu Landssambands íslenskra útvegs- manna á hendur sjómönnum og samtökum þeirra, sem felst í þeim kröfum sem samtökum sjómanna hafa verið afhentar og fela í sér stórfellda skerðingu á kjörum sjó- manna, ef þær ná fram að ganga til viðbótar þeirri skerðingu á hlut sjómanna, sem stjómvöld hafa ákveðið og fært útvegsmönnum með hækkun olíugjaldsins. Má vera, að forustumenn L.Í.Ú. telji sig nú eiga tryggan stuðning stjómvalda við þessi einstæðu kjaraskerðingaráform sín. Stækkun fiskiskipaflotans leiðir til kjararýmunar sjómanna Síðasta þing Farmanna- og fiskimannasambands íslands, sem haldið var á Hótel Esju dagana Ingólfur Stefánsson, framkvæmdastjórí F.F.S.Í. 27.—30. nóvember 1979 ályktaði að þá væri fiskiskipafloti lands- manna hæfilega stór, síðan hafa bæst í flota landsmanna 5 togskip og fyrir séð er að á næsta ári bæt- ast við 6 togskip auk annarra smærri skipa. Stækkun fiskiskipaflotans um- fram áðumefnd mörk hefur óum- deilanlega í för með sér kjara- rýmun sjómanna svo og lands- manna allra. í ljósi ofanritaðs lýsir for- mannaráðstefna F.F.S.Í. allri ábyrgð á hendur L.Í.Ú. vegna óraunhæfrar stækkunar flotans, og telur að útgerðarmenn verði sjálfir að bera það fjárhagslega tjón, sem af flotaaukningunni hlýst, en velta því ekki yfir á sjó- menn. Stunda þarf kolmunnaveiðar Formannaráðstefna Far- manna- og fiskimannasam- bands íslands beinir þeim ein- dregnu tilmælum til stjóm- valda, að á næsta ári verði gerðar raunhæfar aðgerðir, sem geri það kleift að hluti loðnuflotans geti stundað kol- munnaveiðar. En með slíkum aðgerðum væru sköpuð skil- yrði til aukinnar nýtingar á annars vannýttum og afkasta- miklum veiðiskipum og tryggði jafnframt hlutdeild okkar íslendinga í þessum veiðum. 60 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.