Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2003, Blaðsíða 37
Kokl mrinn af T úpiter
sem eldaði ofai Kolbrún Bergþórsdóttir rœðir \ið Úlfar Jr i í Bush Eysteinsson
Úlfar Eystcmsson yfir pottunum á Þremur frökkum.
Ulfar Eysteinsson matreiðslumeistari á
Þremur frökkum er þjóðþekktur fyr-
ir brautryðjendastarf sitt í kynningu og
eldamennsku á fiskréttum. í fimmtán ár
hefur hann rekið veitingastaðinn Þrjá
Frakka við gríðarlegar vinsældir og fisk-
réttir hans eru þekktir víða um lönd.
Úlfar segist hafa verið alinn upp á
hefðbundnum íslenskum mat. Ahugi
hans á matargerð vaknaði í matreiðslu-
tímum í Flensborg þegar hann var
krakki. „Þetta var einn af fáum skólum i
landinu þar sem kennd var matreiðsla og
ég held að það nám hafi haft áhrif á nrun
fleiri stráka en nrig því um tíma voru um
65 prósent af útlærðum, starfandi mat-
reiðslumönnum, frá Hafnarfirði,“ segir
Úlfar. Það var ekki til að draga úr áhug-
anum að komast á sjó en hann fékk oft
að fara á síldveiðar á Faxaflóa með kokki
sem bjó í sömu blokk og hann. Þá var
hann innan við tólf ára og tveimur árurn
síðar var hann kominn urn borð í Esjuna
sem einn af áhöfninni.
Henti pottinum útbyrðis
„Ég var þá strax staðráðinn í að verða
kokkur,“ segir Úlfar. „Vinur pabba, Helgi
Gíslason sem var yfirmaður í Leikhús-
kjallaranum, sagði föður mínum að á-
huginn gæti bráð af mér en ráðlagði hon-
unr að koma mér á sjóinn og láta mig
kynnast eidamennsku. Ef ég væri enn á-
kveðinn í að verða kokkur eftir túrinn þá
hefði ég öðlast þroska tneð ferðinni og ef
ekki þá væri málið afgreitt. Svo ég var
sumarið Í962 á Esjunni og vann myrkr-
anna á milli, skrúbbaði gólf, sá um um
kaffi fyrir yfirmennina á nóttunni og þess
á miiii stakk maður sér ofan í lest og
hjálpaði lil við að losa. Það var gaman að
vera með þessum köllum. Þegar ég hætti
var mér boðið léttastarf um borð en ég
var harður á því að ég ætlaði að verða
kokkur.
Hann segir eitt atvik vera sérlega
minnisstætt frá þessum tíma: „Á Esjunni
vorurn við alltaf með sjóðandi vatn í
potti. Þetta var stór pottur, 50 lítra og í
einhverri höfninni gleymdi ég að setja
vatn í hann þannig að hann hitnaði á
hellunni og á hann kom stórt gat. Ég
skammaðist mín og þegar við sigldum á
milli fjarða henti ég pottinum útbyrðis
Sjómannablaðið Víkingur - 37