Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2003, Síða 66

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2003, Síða 66
Fífldirfska Viðar Finnsson í Finífsdal átti Scháferhund sem hann fékk eitt sinn að taka með sér á sjóinn á togaranum Guðbjörgu ÍS 46 um miðjan vetur. Ekkert markvert gerðist í túrnum en þegar komið var að bryggju var mikill krapi í höfninni. Fljótlega tókst þó að koma enda í land að framan og var keyrt á fullu í springinn til þess að koma skipinu að bryggju að aftan. Gekk það illa vegna krapans. Viðar beið aftarlega á skipinu ásamt hundinum sem var órólegur og vildi komast í land. Þegar tveir metrar eða svo voru eftir í kantinn tók hundurinn undir sig stökk. Ekki fór þó betur en svo, að hann náði ekki upp á kantinn og stakkst í krapahrönglið milli skips og bryggju. Umsvifalaust og án þess að hugsa sig um stökk Viðar í sjóinn á eftir hundinum. Horfðu skipsfélagarnir á eftir honum þar sem hann hvarf í krapann. Öskrað var upp í brú og karlinn beðinn að kúpla frá svo að Viðar og hundurinn kremdust ekki á milli skips og bryggju eða færu í skrúfuna. Eftir að hafa svamlað í íshrönglinu nokkra stund náði Viðar taki á hundinum. Með aðstoð skipsfélaganna voru þeir dregnir upp á bryggjuna, kaldir og hraktir. Þá sagði Viðar: Bölvað fífl er hundurinn. Hann hefði getað steindrepið sig á þessu. Nýju fötin Gunnar Halldórsson, sjómaður í Bolungarvík, sem verður átt- ræður næsta vor, er greinagóður og skemmtilegur karl og þekktur fyrir meitluð tilsvör. Fyrir nokkrum árum kom Gunnar í herrafataverslun Guðsteins Eyjólfssonar á Laugaveginum í Reykjavík. Hann var nýkominn úr erfiðum uppskurði og leit afar illa út, allur fölur og grár. Gunnar langaði til að hressa upp á útlitið með því að fá sér ný jakkaföt, því að hann vissi sem var, að fötin skapa manninn. Hjá Guðsteini var lipur afgreiðslumaður sem sýndi Gunnari alls konar jakkaföt, einhneppt og tvíhneppt, dökk og Ijós. Að lokum sýndi hann Gunnari rándýr jakkaföt og kvað þau vera úr ákallega góðu efni. Væru þessi föt svo sterk að þau myndu end- ast í fjölda ára, ef ekki áratugi. Þá sagði Gunnar: Sýnist þér nú, vinur rninn, að mig vanti föt sem endast lengi? Myndin Eftir eldheita ástarnótt heima hjá konu sem hann hitti á bamum tók hann eftir því, að á náttborðinu var mynd í ramma af glæsileg- um karlmanni. Honum fór ekki að verða um sel og spurði: - Er þetta maðurinn þinn? - Nei, asninn þinn, svaraði hún syfjulega. - Er þetta kærastinn þinn? - Nei, nei. - Er þetta þá pabbi þinn eða bróðir þinn? - Nei, alls ekki. - Hver er þetta þá? - Þetta er ég áður en ég fór í aðgerðina. Betur kvæntur íslensk hjón á ferð í Glasgow fóru í nýlistasafnið þar. Þau staðnæmdust við stórt málverk af þremur nöktum svertingjum sem sátu á bekk. Sá í miðið skar sig úr því hann var með bleikt typpi. Þar sem þau voru að velta þessu fyrir sér kom safnvörð- urinn að og kvaðst vilja útskýra málverkið. Síðan hélt hann korters fyrirlestur um hvernig verkið endurspeglaði ofuráherslu á hinn kynferðislega þátt í lífi og umhverfi svarta kynstofnsins í hvítu samfélagi. Og bætti því við að sá með bleika typpið væri vísbending um sérstöðu hommans á meðal karlmanna. Þegar safnvörðurinn hafði lokið tölunni og látið sig hverfa gaf skoskur maður sig á tal við þau og spurði hvort þau vildu vita hvað verkið táknaði. - Veistu þú eitthvað um það? - Já, ég málaði þetta. í raun og veru eru þetta ekki svertingjar. Þetta er þrír skoskir kolanámumenn. Eini munurinn á þeim er sá, að þessi í miðjunni er betur kvæntur og skrapp heim í hádeginu. Mismæli Mér er nú ekkert að landbúnaði. Þessi peysa er mjög lauslát. Hann sat eftir með súrt eplið. Hann barasta kom eins og skrattinn úr heiðskíru lofti. Þar stóð hundurinn i kúnni. Maður fer í bæinn til að sjá sig og sýna aðra. Já, fólk er nú orðið svo loðið milli lappanna. Svo handflettir maður rjúpurnar. Ryðfríir stálbarkar fyrir_________ Hitaveitur • Pústkerfi • Yatnslagnir Olíulagnir • Frystikerfi • Loftlagnir Viðgerðir og smíði á þenslumúffum Barkasuða Guðmundar ehf. 200 Kópavogur ör 27 3338 • Fax: 554 4220 896 4964 • 898 2773 Kt. 621297 2529

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.