Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2003, Blaðsíða 73

Sjómannablaðið Víkingur - 01.12.2003, Blaðsíða 73
nam aflinn samtals 167.705 tunnum síld- ar. Næstu tvö árin var útvegurinn í liku horfi, en 1884 ollu hafísar, sem hindruðu veiðar, norsku sildveiðimönnunum mikl- um erfiðleikum, auk þess sem þeir misstu fjölda skipa og urðu að þola stór- fellt tjón á veiðarfærum og öðrum bún- aði í fárviðri sem skall á í Eyjafirði 11. september um haustið. Eftir þetta fór að draga úr veiðum Norðmanna hér við land um sinn. Síðari helming 9. áratugar 19. aldar var sildarafli til muna minni en verið hafði, auk þess sem Norðmenn sættu nú vaxandi samkeppni af hálfu ís- lendinga og stjórnvöld tóku að þrengja kosti þeirra á ýmsa lund. Um 1890 var lokið fyrsta þættinum í athafnasögu norskra síldveiðimanna hér við land, og jafnframt fyrsta þætti í íslenskri síldveiði- sögu á síðari öldum. íslendingar héldu þó ótrauðir áfram veiðum og síldarafli þeirra fór vaxandi á siðasta áralug 19. aldar. Norðmennirnir, sem hér stunduðu veiðar á 19. öld, fluttu hingað til lands og kynntu íslendingum veiðitækni, sem þeir þekktu lítt eða ekki til áður, en voru þó tiltölulega fljótir að tileinka sér. Veið- arfærin, eða öllu heldur útvegurinn, nefndist nótalög, en gekk í daglegu tali hér á landi undir nafninu „nótabrúk“, sem var afbökun á norska heitinu not- bruk. Nótalögunum var af kunnugum manni lýst svo: Við nótalagið var höfð skúta frá 50-70 smálestir að stærð, og 3 nótabátar, sem tóku 70-90 tunnur hver, 1 vindubátur, sem tók 15 tunnur, og 2 litlir róðrabálar. 4 nætur voru venjulega hafðar með hverju nótalagi, 1 stór nót, 160-170 faðma löng og 20 faðma djúp, 1 millinót 120 faðma löng og 15 faðma djúp, 1 „lásanót" 70-80 faðma löng og 10-12 faðma djúp og 1 úrkastnót 25 faðma löng og 5 faðma djúp. Þar að auki lil- heyrðu ýms verkfæri og línur, þar á með- al sterk lína, á að giska 300 faðma löng, til þess að draga að landi nótarendana, netriðnar ausur með hæfilegu skafti voru notaðar til þess að ausa síldinni upp úr nótinni með, svo og mjóar línur, festar- tæki og flotáhöld, „skemill“ til þess að styggja síldina út frá nótinni, vatnssjón- auki til þess að sjá með til bolns ef nótin festist o.fl. Eigendur nótalaganna voru margir, út- gerðarmenn, kaupmenn, iðnaðarmenn, bændur, menn af öllum stjettum. Skipshöfnin, sem vann að veiðinni við fullkomið nótalag, var 16-18 menn, og ef það var stórt, eða ef tvö nótalög unni í fjelagi, var alt að því 36 manna, sem störfuðu við það. Sá sem stjórnaði veið- inni, var kallaður „nótabassi“ og ef tvo nótalög unnu i fjelagi, var annar formað- urinn kallaður „yfirbassi". Við þetta er því að bæta, að nótalögin voru flutt úr einum stað í annan og oft Snurpubátarnir komnir að skipshlið, og skipverjar hája sildina. þurfti að leita langtimum saman að síld- inni. Við það byggðu menn á ýmiss kon- ar reynsluvísindum. Verkun síldar, sem veiddist í nótalögin, lýsti Matthías Þórð- arson þannig: Þegar nótaveiði fór fram á sumrin, voru menn alment vanir að láta síldina vera í nótinni 3-4 daga, áður en hún var tekin og söltuð, því hún var venjulega full af átu, sem rotnaði innan í henni og skemdi síldina, ef hún náði ekki að meltast áður en síldin var söltuð. Jafnskjótt og síldin var komin í land, var hún skorin á háls, flokkuð nákvæmlega eftir stærð, og svo söltuð jafnóðum. Tunnurnar voru gerðar úr góðri furu, vel staðnar með vatni, svo þær væru vel þjettar. Síldin var lögð í lög og var saltað á milli laganna og við báða botna. Daginn eftir að síldin var söltuð, voru tunnurnar slegnar aftur, og fyltar með saltlegi, sem var svo sterkur, að sölt- uð síld flaut í honum. St. Uebes- og Liverpoolsalt, sinn helmingur af hverju og fjórðungur úr tunnu, var notað í hverja síldartunnu. Þessar voru veiði- og verkunaraðferðir Norðmanna og þær tóku íslendingar upp eflir þeim. íslendingar liefja síldveiðar Athafnir norsku síldveiðimannanna höfðu, sem vænta mátti, mikil áhrif á ís- lendinga og opnuðu augu þeirra fyrir þeim möguleikum, sem fólust í veiðum og verkun á þessum fiski. Heimildir greina að vísu ekki frá því að íslenskir menn hafi átl beinan þátt í síldarútvegi Norðmanna á Austfjörðum, en margir unnu hjá þeim við veiðar og verkun, og kynntust þannig útveginum frá fyrstu hendi. Ber þá að hafa í huga, að á þess- um tíma var verslun á Austfjörðum enn að langmestu leyti í höndum danskra kaupmanna. Þeir virðast af einhverjum ástæðum ekki hafa haft hug á því að keppa við Norðmenn um síldina, og sama máli gegndi um Gránufélagið eyfirska, sem haslaði sér völl í verslun á Austfjörðum, einkum á Vestdaldseyri við Seyðisfjörð og á Papósi, á 8. áratug 19. aldar. Á Austfjörðum lögðu forráðmenn þess alla áherslu á viðskipti með hefð- bundna verslunarvöru. Norður við Eyjafjörð var málum öðru vísi farið. Hákarlaveiðar og þilskipaút- gerð, sem frá var sagt í 1. bindi þessa verks, bættu efnahag bænda við utan- verðan Eyjafjörð og í vestustu sveitum Suður-Þingeyjarsýslu á 6. og 7. áratug 19. aldar. Það eíldi þeint kjark og bjart- sýni, sem m.a. birtist í stofnun Gránufé- lagsins árið 1870. Árangurinn af starf- semi félagsins þótti lofa góðu á 8. ára- tugnum og þegar kom fram um 1880 var kominn fram í Eyjafirði litill hópur manna, sem hafði til að bera áræði og fjárhagslegt bolmagn til að ráðast í nýj- ungar í alvinnumálum. Þar fór Tryggvi Gunnarsson, kaupstjóri Gránufélagsins, fremstur í flokki, en naut atfylgis traustra stuðningamanna. Þessir menn voru fljótir að átta sig á þeim möguleikum, sem 1 sildveiðunum fólust. Sumir þeirra voru einnig kunnug- ir i Noregi og voru fljótir að koma sér í samband við norska síldarútvegsmenn. Þá spillti það ekki heldur fyrir, að a.m.k. sumir þessara manna höfðu handbært fé, eða voru i aðstöðu til að hefja síldveiðar fyrir eigin reikning. Norðmenn munu fyrst hafa reynt síld- veiðar að nokkru marki i Eyjafirði sutn- arið 1879. Veturinn áður dvaldist Einar B. Guðmundsson, bóndi og alþingismað- ur á Hraunum í Fljótum, í Álasundi og kynntist þar ýmsum Norðmönnum. Þeg- ar heim kom, skrifaði hann fróðlega grein um síldveiðar Norðmanna, sem birtist í 3.-4., 5.-6. og 23.-24. tbl. Norð- lings árið 1880. Þar hvatti hann landa Sjómannablaðið Víkingur - 73
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.