Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 8
60
NÁTTÚR U FRÆÐIN G U RI N N
3. mynd. ísrákaður steinn í jökulberginu á Sandfelli. Striated boulder in the
tillite on top of Sandfell. Ljósm.:
Photo: J°n J°nSSOn'
jökulbergslög, T 2, og áðurnefnd lög, T 1, séu í raun og veru eitt
og sama lag, en þá verður að gera ráð fyrir misgengi, sem nemur
líklega 320—360 m, einhvers staðar vestan við Úlfarsfell og milli
þess og áðurnefndra laga við Gufunes—Blikastaðakró. Lítilsháttar
samanburður á steinunum í jökulberginu á báðum þessum stöð-
um bendir til þess, að ekki sé að svo stöddu hægt að ganga fram
hjá þessum möguleika. Hér þarf þó nánari athugana við.1)
I Grímarsfelli er sums staðar allþykkt millilag, sem ef til vill er
af sömu rótum runnið og lögin í Úlfarsfelli og frá sama tíma, en
ekkert er um það vitað enn þá.
1) Síðari athuganir virðast fremur mæla gegn því að verulegt misgengi sé
þarna, og virðast því jökulbergslögin T i og T 2 vera tvö mismunandi lög.