Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 12
64
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
er um að ræða fasta klöpp eða stóran stein, að mestu hulinn jarð-
vegi og öðru lausu efni.
Allt virðist mæla með því, að Fossvogslögin alkunnu séu áfram-
hald þessara berglaga. Um Fossvogslögin hefur svo margt verið
ritað, að ekki er ástæða til að gera þau sérstaklega að umtalsefni
í þessari grein. Líklega er áframhald þeirra undir allmiklum liluta
af Reykjavíkurflugvelli, því að þau koma fram í grunnum húsa
við Oddagötu og Aragötu. Fagurlega ísnúin jökulbergsklöpp var
vestan við húsið nr. 8 við Aragötu. Bæði þar og eins við vestan-
verða Oddagötu er mikið af skeljabrotum í berginu. í því liafa
einnig fundizt leifar mosadýra (Bryozoa). f grunni Neskirkju kom
sama berg fram, og eins er það í fjörunni skammt austan við Hrólfs-
skála. Við Seltjörn og á Suðurnesi sést það líka á nokkrum stöðum.
í Háubökkum, vestan við Elliðavog eru allþykk setbergslög og
efst í þeim jökulberg, sem líklega er frá sama tímabili. Um þessi
lög hafa þeir Helgi Pjeturss og Þorkell Þorkelsson áður ritað, og
er ekki ástæða til að endurtaka það hér, nema livað bent skal á,
7. mynd. Bólstraberg á Brimnesi við Kollafjörð. The interglacial doloritic pillow-
lava at Brimnes, superimposed on tillite 3. Ljósm.: Tónsson
Photo: J J