Náttúrufræðingurinn - 1960, Blaðsíða 26
78
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Plöntulýsingar.
Hér á eftir verður ofannefndum ættbálkum brúnþörunga lýst
nokkuð, getið þeirra ætta og ættkvísla, sem fundizt bafa hér á landi,
og lýst fáeinum íslenzkum tegundum, sem mjög eru algengar eða
sérkennandi geta talizt fyrir þann ættbálk, senr þær tilheyra. Tala
í' svigum aftan við lieiti ættkvíslarinnar gefur til kynna tegundafjöld-
ann hérlendis. Greiningarlyklar yfir þaraættina (Laminariaceae) og
þangættina (Fucaceae) eru teknir upp eftir Helga Jónssyni, nær
óbreyttir, sömuleiðis lýsingarnar á tegundum þeim, sem þarna eru
taldar af Jressum ættum.
1. œttbálkur. Ectocarpales.
Smávaxnar plöntur, sumar vart sjáanlegar berum augum, aðrar
nokkrir centimetrar á hæð. Þalið greinóttir, einraða frumuþræðir,
sem vaxa aðeins á lengdina. Þræðirnir loða oft saman til hliðanna
og mynda eins konar vef, þráðþal. Koma þá oft fram meira eða
a
1. mynd. Myrionema vulgare. a. hluti a£ grænjFirung (Ulva) með brúnjrör-
ungnum á, í náttúrlegri stærð. I) hluti af þali brúnþörungsins (x 200). c þver-
skurður af þalinu með einhólfa gróhirzlum (x 200) (Kútzing).