Náttúrufræðingurinn - 1960, Side 28
80
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
S n ú ð s 1 í. Pylaiella littoralis.
Plöntumar í gulbrúnum breiðum eða dúskum, allt að 20 cm
á hæð. Þalið fastvaxið neðan með rótarþráðum. Þræðirnir allt frá
20 (x á breidd í hliðargreinunum
og upp í 70 g í aðalgreinunum,
mjög greinóttir og samanofnir,
oft snúnir saman neðst. Lengd
frumanna í þráðunum jöfn eða
allt að tvöföld á móti breiddinni.
Þalið slímugt. Gróhirzlumar í
röðum í þráðunum, þær einhólfa
oft margar saman, eins og perlur
á bandi. Vex einkum á Fucus.
Algengt meðfram allri strönd-
inni.
3. mynd Pilayella littoralis. a þörung-
ur í lialfri stærð. b þræðir með marg-
hólfa gróhirzlum (x 100). c þræðir með
einhólfa gróhirzlum (x 100) (Hauck).
2. œttbálkur. Spliacelariales.
Plönturnar grófir dúskar, allt að 15 cm háir. Þræðimir stinnir,
margraða, liðskiptir og mjög greinóttir. Vöxturinn fer fram í grein-
arendunum. Toppfruman skiptir sér fyrst þvert á lengdarás grein-
arinnar, en neðri frumurnar skipta sér síðan samsíða lengdarásnum.
Við þetta myndast í greininni belti eða liðir af samhliða fmmum.
Þalið fastvaxið neðan með rótarflögum. Á eldri hlutum plöntunnar
vaxa oft rótarþræðir niður með aðalgreinunum. Á þalinu vaxa oft
hár, einstök eða mörg saman. Báðir ættliðir eins útlits. Vaxa á stein-
um og sem ásætur á öðmm þörungum.
SPHACELARIACEAE: Sphacelaria (3), Chaetopteris (1).