Náttúrufræðingurinn - 1960, Page 50
102
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
þeim kynnum, sem ég hei' haft af þeim mönnum, sem hér eiga
hlut að máli, er ég þess fuliviss, að þetta mál megi leiða til iykta
með frjálsu samkomulagi.
Finnur Guðmundsson.
Fugladauði á Mývatni af völdum netaveiða
Mývatn er eitt fiskauðugasta vatn landsins og þar hefur silung-
ur verið veiddur í net öldum saman. En Mývatn er líka frægt fyrir
auðugt fuglalíf og mun andavarp livergi meira en þar. Frá ómuna-
tíð hefur meira eða minna af öndum farizt í netum Mývatnsbænda,
en iengst af hefur fugladauði af þessum sökum ekki verið svo mikill,
að fuglalíf vatnsins í heild hafi beðið alvarfegan linekki við það.
Á þessu hefur hins vegar orðið mikil breyting á síðustu árum með
tilkomu utanborðsmótora og nælonneta. Vélvæðing bátaflotans á
Mývatni hefur leitt til þess, að vegalengdir eru þar úr sögunni og
jafnframt því hafa menn stóraukið netakost sinn og tekið í notkun
nælonnet í stað þeirra neta, sem áður voru notuð. Þegar netaveið-
arnar eru stundaðar af mestu kappi, er vatnið því hólfað sundur
með netatrossum og hefur þetta valdið stórauknum fugladauða. Nú
mun það meðal annars ekki orðið óalgengt, að fleiri fuglar fáist í
umvitjun en silungar. Sumpart stafar hinn aukni fugladauði af
auknum netakosti en sumpart af því, að fuglinn á erfiðara með að
varast nælonnetin en þau net, er áður voru notuð.
Ef þetta kapphlaup manna um netaveiðar í Mývatni lreldur áfram
má búast við, að það hafi mjög alvarlegar afleiðingar fyrir fuglalíf
vatnsins og geti jafnvel leitt til gereyðingar þess. Þetta er því mjög
alvarlegt mál, sem ekki verður komizt hjá að gefa nánari gaum.
Hins vegar er sá vandi á höndum í þessu máh, að engin lög eða laga-
fyrirmæli eru um það, hve mikill netakostur má vera í Mývatni í
einu. Hér er því vart urn annað að ræða en samkomulagsieiðina eða
frjáls samtök veiðibænda í Mývatnssveit um takmörkun netaveið-
anna. Ég tel eðlilegt, að Náttúruverndarráð beiti sér fyrir því í
samráði við Fuglafriðunarnefnd og veiðimálastjóra, að reynt verði að
ná samkomulagi um siíka takmörkun netaveiðanna.
Finnur Guðmundsson.