Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 4
152
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
steini með surtarbrandi. Jurtaleifar úr surtarbrandslögum í neðri
hluta blágrýtismyndunarinnar benda til þess, að elztu lögin séu
ártertier að aldri, þ. e. a. s. allt að 60—70 milljónum ára görnul.
Mest ber þar á blaðförum og frjókornum lauftrjáa, sem vaxið hafa
við milt loftslag. Er líða tekur á tertier-tímann, kólnar í veðri.
Laufskógurinn víkur æ meir fyrir barrskógum. Á síðtertier hylur
svo jökull hluta landsins fyrsta sinni, svo sem millilög úr jökul-
bergi1) í elri hluta blágrýtismyndunarinnar (gráa hæðin) í Esju,
Fnjóskadal, Efornafirði og víðar bera vitni um, en mestur hluti
hinnar kulvísu flóru mun hafa lifað þetta kuldakast af. Skelja-
lögin á Tjörnesi eru einnig síðtertier (pliósen) að aldri.
Á hinum eiginlega jökultíma, sem tók yfir síðustu milljón ár-
in, eru kunnar hér á landi minjar þriggja ísalda og tveggja hlý-
viðrisskeiða eða hlýalda líkt og á norðanverðu meginlandi Evrópu.
I Olpunum hafa fundizt ummerki fimm ísalda og í Norður-Ame-
ríku fjögurra. í byrjun jökultímans dóu hinir kulvísu barr- og
laufskógar tertier-tímans út hér á landi. Elrir, birki og víðir lifðu
ein trjáa fyrstu ísöldina af. Leifar þessara trjáa finnast í jarðlög-
um eldri hlýaldar í Brimlárhöfða (Stöðinni) í Grundarfirði, Bakka-
brúnum í Víðidal og Svínafellsfjalli í Öræfum. Á næstu ísöld, en
hún mun hafa verið hörðust, dó elririnn út. í Eláubökkum við
Elliðavog hafa fundizt jurtaleifar frá síðustu hlýöld og í þeim
leifar m. a. birkis og víðis, en ekki elris. Birki og víðir hjörðu af
kulda síðustu ísaldar ásamt miklum hluta núverandi flóru á íslaus-
um svæðum.
Samkvæmt rannsóknum Guðmundar Kjartanssonar á jökulrisp-
um á miðhálendinu munu ísaskil meginjökuls síðustu ísaldar hafa
verið allt að 50 km sunnan núverandi vatnaskila. Sunnanáttin hef-
ur verið úrkomusöm á jökultíma ekki síður en í dag. Jökulskjöld-
urinn norðan vatnaskila hefur verið mun þynnri en sunnan þeirra,
svo að um dali og firði norðan lands hafa aðeins skriðið daljöklar,
en fjöll flest og fjallgarðar verið íslaus. Á ísöldunum var mikið
vatn bundið í jöklum, og var því sjávarborð um heim allan a. m. k.
1) Helgi Pjeturss fann jökulbergslögin fyrstur og taldi þau mynduð
snemma á jökultíma. Nú síðustu árin hefur einkum Jón Jónsson unnið að
rannsókn þessa jökulbergs og talið það síðtertiert. Vestur í Alaska hefur fundizt
jökulberg sem millilag í síðtertieru sævarseti, og bendir það til, að víðar en á
íslandi hafi jöklar verið farnir að stækka í lok tertiertímans.