Náttúrufræðingurinn - 1961, Side 8
156
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
veg en Iiingað til hefur verið gert, einkum jökultímann, taldi ég
rétt, að svo væri.
Berg frá jökultíma.
Elzta berg Hellisheiðarsvæðisins er að finna í lagskiptri grá-
grýtismyndun í neðri hluta Kambabrúnar og Núpafjalls, svo og í
Hjallafjalli. Á grágrýtismyndun þessari, Kamba- eða Hjallagrá-
grýti, liggur í Kambabrún þunnt lag af jökulbergi. Á því ligg-
ur síðan allþykk móbergsmyndun,1 *) Núpafjallsmóberg. Myndun
þessi er allóregluleg, lagskipt móberg, þursamóberg, bólstraberg.
I Þurárhnúk og Keriingarbergi er einnig ofan til lagskipt grágrýti.
Innskot eru mörg og óregluleg, gangar, æðar, kubbaberg og stuðla-
sveipir. Móbergsmyndun þessa er líka að finna í Núpafjalli og í
brún Efrafjalls (í Hesti og Kerlingabergi). Kambagrágrýtið er lík-
lega runnið sem hraun á hinni eldri hlýöld. Jökulbergið og Núpa-
fjallsmóbergið eru líklega mynduð á næstsíðustu ísöld, og er það
líkt móbergi í Jórukleif að aldri, en það liggur undir Mosfells-
heiðargrágrýti, sem runnið er frá Mosfellsheiði á síðustu hlýöld.
Mosfellsheiði er dyngja með tveim gígrústum, Borgarhólum og
ónefndum hæðum austur undir Þingvallavatni. Frá Borgarhólum
er líka runnið yngsta grágrýtið í nágrenni Reykjavíkur (Reykjavík-
urgrágrýti).
Síðan Helgi Pjeturss fann millilög úr jökulbergi í Hreppamynd-
uninni um aldamótin, hafa móbergsfjöllin verið talin mynduð á
ísöldum undir eða í jökli. Móbergsfjöll Hengilsvæðisins hafa hlað-
izt upp í geilum eða götum, sem bráðnað hafa í jökulinn yfir eld-
stöðvunum líkt og flest móbergsfjöll á landinu (Guðmundur Kjart-
ansson 1943). Móbergsfjöll þau, sem nú verður getið, eru öll mynd-
uð á síðustu ísöld. Götin fylltust að miklu leyti með leysingar-
vatni. Meðan vatnsþrýstingur var nægur yfir eldstöðvunum, hlóðst
upp bólstraberg í geilinni, en vatnsdýptin gat numið allt að 9/10
ísþykktarinnar. Yrði vatnsdýptin meiri, lyftist jökullinn, og uppi-
staðan tæmdist í jökulhlaupi. Bólstraberg er víða að finna í neðri
hluta móbergsfjalla á Hellisheiðarsvæðinu, svo sem í Draugahlíð-
um, Lakahnúkum, milli Meitla, í Stóra-Skarðsmýrarfjalli og víðar.
1) Orðið móberg er notað hér um gosmóberg, en frá því á að greina set-
móberg, sem myndað er úr vatns- eða vindfluttum efnum.