Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 40

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 40
188 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN stöðum. Skemma oft matvæli og fatnað o. fl. En úr þeim er líka hið fræga lyf penisillín unnið. Sumir hattsveppir eru eitraðir t. d. berserkjasveppurinn. Gersveppir lifa í sætum vökvum og valda gerjun, þ. e. breyta sykri í vínanda og kolsýru. Þeir eru þess vegna ræktaðir og notaðir mikið við brauð- öl- og víngerð. Sníkjusveppir lifa á öðrum lifandi jurtum eða dýrum og geta valdið sjúkdóm- um, t. d. kartöflumygla, reyniáta o. s. frv. Flugnamyglusveppurinn vex í stofuflugunni. Vaxa að lokum gróþræðir út úr flugunum, sem verða eins og mjölvi drifnar af gróunum. Drepur sveppurinn flugurnar oft að lokum. Sveppirnir geta rutt sér braut með miklu afli. Próf. J. T. Bonn- er segir svo frá: „Eg var vanur að ganga með hundinn minn á hverjum morgni dálítinn spöl á fáförnum, malbikuðum vegi. Einn morgun tók ég eftir ójöfnum, hálfkúlulaga, á stærð við undir- bolla í malbikinu. Nokkrum dögum síðar sá ég mér til mikillar undrunar að ein hálfkúlan var sprungin og sveppur var farinn að vaxa upp úr henni. Elvernig gat mjúkur sveppur sýnt þvílíka afl- raun? Nú er malbikið í rauninni þykkur vökvi, en svo stöðugur, langvarandi þrýsingur getur hreyft það eða sveigt. Eg fór að graf- ast fyrir um rnálið og fann m. a. frásögn í rússnesku blaði, þar sem sagt er frá svipuðu fyrirbæri. Þar kom sveppur upp um verk- smiðjugólf!“ Próf. Bonner o. fl. hafa síðan fengist rnikið við að rannsaka vöxt sveppa lífeðlisfræðilega. Líkir hann sveppum við tóma blöðru um skeið, sem aðeins bíði fyllingar. Hinir ungu sveppir eru oft að mestu huldir undir grasi eða laufi, en jafn- skjótt og skilyrði — hiti og raki — verða hagstæð, streymir upp- leyst næring upp í sveppaþræðina með undraverðum hraða. Frum- urnar þenjast út, sveppurinn lengist skyndilega og brýtur sér braut. Snúum oss nú að fyrirbæri því, sem nefnt er nornabaugar. Steingrímur Björnsson, Ytri-Tungu, segir svo frá: „Það eru mörg ár síðan ég tók eftir því hér og á næsta bæ, að grænar rendur sáust í úthaganum, sem er fremur snögglent viðar- og lyngmólendi. Rendur þessar eru um 10—50 m á lengd og rösklega \/2 m á breidd. Þær liggja oftast frá norðaustri til suðvesturs. Græna litinn fá þær af því, að grasgróður sá, er leynist í lynginu, og sem ég álít aðallega móasef, verður dökkgrænn á þessu svæði, líkastur því að hann liefði hlotið góðan skammt af köfnunarefnisáburði. Einkennilegast við þetta er það, að rendur þessar færast til, hérumbil um breidd

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.