Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 12
160
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
Hæstu sjávarmörk í Ölfusi eru í Hjallafjalli ofan Þóroddsstaða í
55 m hæð, en í Hveragerði í 60 m hæð. Síðan brimið klappaði þessi
hæstu fjörumörk, munu líklega vera liðin um 14000 ár, sem áður
segir. Af sjávarminjum ber mest á lábarinni möl og hnullungum.
Brimþrep eru og víða greinileg, svo sem í Hjallafjalli og Skála-
fellsgrágrýti hjá Núpum; bærinn stendur í þrepinu. Einnig eru
hlíðar Hamarsins ofan Hveragerðis gamalt sjávarbjarg, sem og
Kambabrún og hlíð Núpafjalls. Brimsorfnir hellar eru í Vatns-
skarði. Á Hjallafjalli ofan Þóroddsstaða eru fallegir malarkampar,
sem brimið hefur rótað upp. Sjór fjaraði, eða réttar sagt landið
hækkaði síðan á 5000 árurn, svo að hann var kominn þá a. m. k. 4
m niður fyrir núverandi sjávarmál, svo sem sjá má af myndun f jöru-
mós í Seltjörn, en hann myndaðist ofan sjávarborðs. Á síðusttr
árþúsundum liefur land síðan lækkað nokkuð.
Hraun frá nútíma.
Hellisheiðarhraunin eldri.
Á vestanverðri Hellisheiði eru eldstöðvar, sem gosið hafa a. m. k.
fjórum sinnum á nútíma, en nútíminn nær að tímatali jarðfræð-
inga yfir síðustu 10000 árin, eins og áður gat. Gígar beggja hinna
eldri hrauna eru huldir yngri hraunum. Mjög erfitt er að greina
eldri liraunin hvort frá öðtu. Verða eldri hraunin því rædd í einu
lagi. Auðvelt er að greina yngri hraunin frá hinum eldri í lands-
lagi. Einnig ber meir á feldspat-dílum í blágrýti eldri hraunanna
en hinna yngri, minnst í yngsta hrauninu, Kristnitökuhrauni.
Eldri Hellisheiðarhraunin hylja syðri hluta Hellisheiðar, og ligg-
ur þjóðvegurinn lengstum á þeim. Á norðanverðri heiðinni eru
þau horfin undir yngri hraun. Hraunflóðin hafa runnið austur
heiðina og fram af Kambabrún niður í Ölfus, allt austur að Varmá,
beggja vegna Hamarsins. Tota úr elzta hrauninu nær þó austur
yfir ána við þjóðveginn. Varmárbrúin stendur á jiessu hrauni, svo
og bærinn að Völlum. Bæirnir Saurbær, Þúfa, Kröggólfsstaðir og
Vötn utan Varmár standa í jaðri elzta hraunsins. Rétt norðan þess-
ara bæja virðist vera brún næstelzta hraunsins, og standa bæirnir
Yxnalækur og Vorsabær í lienni. Ein kvísl hraunflóðsins á heið-
inni rann suður á milli Hverahlíða og Núpafjalls og niður um
skarð í fjallsbrúninni ofan Núpa. Þetta hraun endar rétt ofan bæj-
arhúsa að Núpum og hefur ekkert breiðzt út á jafnsléttu. Önnur