Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 13
NÁTTÚRUFRÆÐIN GURINN
161
4. mynd. Felling í lagskiptu móbergi vestan í Stóra-Reykjafelli. Hæð fellingar-
innar líklega um 100 m. — Falte im Palago?iittuff. — Ljósm. Þ. E.
kvísl sama hrauns rann enn lengra til suðausturs og niður gilið
norðan Vatnsskarðs og breiddist nokkuð út á láglendi, en síðar
hefur Þurárhraun runnið yfir það. Einn hraunstraumur hefur
runnið til suðurs frá eldstöðvunum milli Lakahnúka í Lakadal, ann-
ar til vesturs niður Hellisskarð. Þetta hraun sést í misgengi í aust-
urbrún skarðsins. Enn einn hraunstraumur hefur líklega runnið
vestur úr Hveradölum og allt norður fyrir Draugahlíðar. Sér nú
á hraun þetta sem apalhraunskika í Svínahrauni (Leitahrauni) rétt
norðan móta gamla vegarins og Þrengslavegar.
Eldri Hellisheiðarhraun eru víðast algróin apalhraun nema
elzta hraunið við Varmárbrúna, sem er helluhraun. Um aldur
þessara hrauna er það að segja, að elzta hraunið er ekki runnið
fyrr en sjór var komin niður fyrir 3 m hæð yfir núverandi sjávar-
mál og getur því vart verið eldra en 10000 ára gamalt. Næstelzta
hraunið er eldra en Leitarhraun, en það er yngra en 5300 ára, svo
sem síðar segir. Eldri Hellisheiðarhraunin eru því yngri en 10000
ára og eldri en 5000 ára gömul.