Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 18
166
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ar undir Meitlum, en Eldborg er syðsti og reyndar stærsti gígur
sprungunnar.
I fyrsta þætti gossins kom einkum upp hraun úr nyrzta hluta
sprungunnar, milli Stóra-Skarðsmýrarfjalls og núverandi þjóðveg-
ar. Hraunið breiddist í fyrstu út á hallalítilli heiðinni austan gos-
sprungunnar. Hraunstraumur rann síðan austur með Stóra-Skarðs-
mýrarfjalli og sunnan Orustuhóls að Hengladalsá og stöðvaðist
þar. Nefnist þar Orustuhólshraun. Annar hraunstraumur rann vest-
ur yfir sprunguna, þar sem nú er þjóðvegurinn, og niður í Hvera-
dali og vestur úr þeim yfir austurjaðar Svínahrauns. Hraun þetta
nær ekki lengra til norðurs en í beina línu vestur af suðurhorni
Litla-Reykjafells. Ein álma þessa hrauns rann síðan gegnum
Þrengslin allt til Lambhóls. Síðar rann Svínahraunsbruni yfir vest-
urjaðar þessa hrauns, sem síðar getur. Stærstur og þekktastur er þó
hraunstraumur sá, sem nefndur er Þurárhraun. Hann rann í
mjórri kvísl austur heiðina norðan Smiðjulautar, austur yfir þjóð-
veginn og síðan austur með Hverahlíðum og niður á láglendi um
Vatnsskarð. Er þar 140 m hár hraunfoss. Hraunið breiddist síðan
út yfir mýrarnar austan Þurár allt austur undir Varmá. Þurárhraun
er um 11 km að lengd.
Úr miðhluta sprungunnar, milli þjóðvegar og Lakahnúka, hef-
ur einnig komið mikið hraun, sem brotizt hefur í mjórri kvísl milli
yztu Lakahnúka niður í dal þann, sem Hellur heitir. Norður úr
dalnum er Lágaskarð til Hveradala, en Lakadalur til austurs milli
Lakahnúka og Stóra-Sandfells. Dalurinn liefur fyllzt hrauni, sem
rann til hans í áðurnefndri kvísl og eins úr syðsta gígnum á þess-
um hluta sprungunnar í Lakahnúkum. Varð mikil og slétt hraun-
tjörn í dalnum. Dalurinn var lokaður til suðurs milli Litla-Meitils
og Stóra-Sandfells af grágrýtishafti, sem hélt uppi hrauntjörninni.
En vart mun dalbotninn hafa verið orðinn fullur af hrauni, er
syðsti hluti sprungunnar opnaðist og hraun tók að streyma þar
upp. Grágrýtishaftið brast, og hraunið úr tjörninni fékk framrás
með hrauninu, sem upp kom í syðsta hluta sprungunnar. Enn
sýna hraunhjallar umhverfis Hellur, að hrauntjörnin hefur staðið
allt að 5 m hærra en dalbotninn er í dag. Eldborg undir Meitl-
um stendur á grágrýtishaftinu.
Eldborg undir Meitlum er stærsti gígur á allri gossprungunni,
um 50 m á hæð. Eldborgin er að vísu aðeins helmingur gígs, því