Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 19

Náttúrufræðingurinn - 1961, Page 19
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 167 7. mynd. Malarkampar myndaðir við hæstu sjávarstöðu á síðjökultíma á Hjalla- fjalli norðan Þóroddsstaða. Efsti kampurinn er 55 m.y.s. Lengra í burtu sjávar- bjarg rnyndað á sama tíma framan í Hjallafjalli. í baksýn er Hraunsheiði (Leita- hraun). — Brandungswalle und Steilstufe des spiitglazialen Meereshöchststandes 55 m ii. MAr auf Hjallafjall. — Ljósm. Þ. E. að hraunið, sem vall upp úr henni og gegnum hana, hefur rifið með sér eystri gígvegginn. Nokkru norðan Eldborgar er önnur eldborg, um 10 m há. Milli eldborganna er greinileg hrauntröð. Eldborgir þessar mega heita einu gígarnir á allri gossprungunni, sem því nafni geta kallazt. Annars staðar gætir mest gjallhrúgalda og óreglulegra rima. Þó eru tvær litlar eldborgir, 5 m að hæð, sunnan Stóra-Skarðsmýrarfjalls. Fell þau, sem sprungan gengur í gegnum norðan þjóðvegarins, eru úr móbergi, en að mestu hulin gjalli. Hraunið, sem upp kom í Eldborg undir Meitlum, og eins það, sem fékk framrás úr hrauntjörninni í Hellum, breiddist út á heið- inni sunnan Litla-Meitils og Sanddala. Er það úfið apalhraun og

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.