Náttúrufræðingurinn - 2007, Side 14
Náttúrufræðingurinn
land.2 Eins jókst hrygning íslensku
sumargotssíldarinnar (Clupea har-
engus) norður með ströndum fyrir
austan og vestan á hlýju árunum
eftir 1925. Hins vegar gekk loðnan
þá ekki á hefðbundin hrygningar-
svæði við suðvestanvert landið og
hafði það þau áhrif að þorskur á
þeim slóðum var óvenju horaður.2
A áðurnefndu hlýskeiði var
þorskur mun algengari við Græn-
land en áður hafði verið.3,4 Aukin
stofnstærð þorsks við Grænland
byggðist meðal annars á reki
þorsklirfa frá íslandi, sem að hluta
skiluðu sér til baka á Islandsmið
sem kynþroska fiskar. Þannig varð
hlýnun sjávar til þess að uppeldis-
svæði íslenska þorsksins stækkaði
verulega. Með kólnandi veðurfari
og miklum veiðum um miðjan sjö-
unda áratuginn hrundi þorskstofn-
inn við Grænland.34 Auk þess má
nefna að kaldur sjór norðaustan
íslands hefur veruleg áhrif á göngur
norsk-íslensku síldarinnar og talið
er að slíkt ástand hafi valdið hruni í
síldveiðum við Norðurland um
miðjan sjöunda áratug 20. aldar.5
Mælingar Hafrannsóknastofnun-
arinnar á ýmsum tegundum fiska
benda til að stofnar hlýsjávarteg-
unda hafi almennt stækkað undan-
farin ár meðan stofnar kaldsjávar-
tegunda hafa farið minnkandi.4-6-7
Auk þess hafa fjölmargar fiskteg-
undir, sem ekki hafa sést hér áður,
flækst til Islandsmiða frá suðlægari
hafsvæðum.1 Sumar þeirra gætu
jafnvel verið að taka sér búsetu hér
við land, svo sem flundra (Platicht-
hys flesus), sem fannst hér fyrst árið
1999 og hefur síðan breiðst út um
grunnsævi og árósa sunnan- og
vestanlands.1-8
Hlýnun sjávar er einnig talin hafa
breytt lífsskilyrðum ýmissa hrygg-
leysingja við landið. Norðlægar teg-
undir eins og hörpudiskur (Chlamys
islandica) og rækja (Pandalus borealis)
eiga í vök að verjast, þótt þar geti
reyndar verið erfitt að greina milli
áhrifa umhverfisbreytinga, veiða og
affalla af öðrum ástæðum.910 Suð-
lægar tegundir hafa hins vegar
verið að nema land í auknum mæli
og má þar nefna sandrækju
(Crangon crangon) og ýmsar tegund-
ir krabba.1112
I þessari grein er fjallað um breyt-
ingar sem orðið hafa á útbreiðslu
skötusels hér við land með hækk-
andi hitastigi sjávar. Leitast er við
að bregða ljósi á þessa þróun og
komast að því á hvaða hátt aukinn
sjávarhiti hafi áhrif á líffræði
skötuselsins.
Efniviður
Greinin byggist á gögnum úr rann-
sóknaverkefninu „Stofnmæling
botnfiska á íslandsmiðum" (SMB,
einnig nefnt togararall) sem hefur
farið fram árlega í marsmánuði frá
1985. Sýnum er safnað á staðlaðan
hátt með botnvörpu á um 550 föst-
um stöðvum á 20-500 m dýpi allt í
kringum landið.13 Á hverri stöð eru
gerðar ítarlegar mælingar á aflan-
um. Allar tegundir fiska sem veið-
ast eru lengdarmældar og margar
auk þess vigtaðar, kyn- og kyn-
þroskagreindar og kvörnum safnað
til aldursgreiningar. Auk mælinga á
aflanum eru skráðar upplýsingar
um ýmsa umhverfisþætti, svo sem
sjávarhita við botn og yfirborð.
Til samanburðar við niðurstöður
stofnmælinganna er litið á breyting-
ar á dreifingu skötuselsveiðanna út
frá upplýsingum úr afladagbókum
fiskiskipa.
BREYTINGARÁ SJÁVARHITA
Talsverðar breytingar urðu á hita-
stigi sjávar við botn á rannsóknatím-
anum. Við norðanvert landið ein-
kenndust fyrstu árin af fremur hlýj-
um sjó en árin 1989, 1990 og 1995
voru köld. Frá 1995 hefur sjórinn
fyrir norðan land hlýnað og árin
Suðursvæði
Norðursvæði
o
o
xi
i i ,
a ■ i ■
! i i' ‘ | i i1
i;i i i i,
1 ! 1 I , !
ÍM ■ ií!
1 i i 1 ' X
I
I ■ 1
11111 v ; ■ i
i I j | I I 1 I
■; i ■;
. i! ■1 11 i1
■ i i i
85 87 89 91
93
95 97
Ár
99 01 03 05
2. mynd. Sjávarhiti við botn í Stofnmælingu botnfiska í mars á Norðurmiðum (Kögur-
Gerpir) og Suðurmiðum (Hornafjörður-Látrabjarg) árin 1985-2006. Súlurnar sýna bilið
þar sem annar og þriðji fjórðungur gagnanna liggur (interquartile distance), svört lína í
súlum sýnir miðgildi og gráa bilið sýnir 95% öryggismörk fyrir miðgildið. - Bottom
temperature measured in the lcelandic Groundfish Survey in March 1985-2006. The blue
boxes applyfor the area north and east oflceland and the red boxesfor the area south and
west oflceland. The bottom and top of the boxes indicate the 25th and 75th percentile,
respectively, the black lines indicate the median and the grey part gives the 95%
confidence limitsfor the median.
14