Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 18
Náttúrufræðingurinn
7. mynd. Útbreiðsla skötusels samkvæmt aflaskýrslum togara og dragnótabáta árin 1999, 2001, 2003 og 2005. Rauðir punktar sýna
staðsetningar þar sem skötuselur var skráður sem hluti aflans en í togum og köstum merktum með gulum punktum fékkst skötuselur
ekki. - The spatial distribution of anglerfish according to log-books from trawlers and Danish-seine vessels in 1999, 2001, 2003 and
2005. Red dots indicate locations where anglerfish was registered as part ofthe catch while the yellow dots indicate tozvs zvhere it was
not registered.
fiskum sem höfðu veiðst aftur í lok
árs 2005 fékkst einn hér við suður-
ströndina.15 Af þessu má ráða að um
er að ræða far einstakra fiska frá
Bretlandseyjum og Færeyjum til ís-
lands. Lítið er þó vitað um hversu
umfangsmiklar göngurnar eru eða
hvort skötuselur gengur frá Islands-
miðum á önnur hafsvæði.
I þessu sambandi má nefna að
fyrstu niðurstöður úr erfðafræði-
rannsóknum benda til að skötusel-
urinn við ísland sé náskyldur
skötusel við strendur meginlands
Evrópu, og það bendir til samgangs
milli þessara svæða.15 Þar gæti
annars vegar verið um að ræða
göngur og hins vegar lirfurek eins
og áður hefur komið fram.
Lokaorð
Á undanförnum árum hefur magn
og útbreiðsla skötusels aukist veru-
lega hér við land. Eru þessar breyt-
ingar hvað mest áberandi hjá
yngsta skötuselnum og benda til að
nýliðun skötusels á íslandsmiðum
hafi margfaldast. Þessar breytingar
má að öllum líkindum rekja til
hækkandi hitastigs sjávar sem hefur
leitt til stækkunar á mögulegu upp-
eldis- og búsvæði skötuselsins við
landið. Um leið og skötuselurinn
hefur fært út búsvæði sitt hafa
möguleikar hans til fæðuöflunar
líklega aukist en fæða hans er nokk-
uð fjölbreytt, svo sem þorskfiskar,
flatfiskar, sandsíli, karfi, smokkfisk-
ur og ýmis krabbadýr.1
Ef hitastig sjávar við ísland verð-
ur áfram hátt eða fer hækkandi
næstu ár má búast við að útbreiðsla
hlýsjávartegunda færist norðar en
þrengja muni að norðlægari teg-
undum. Jafnframt gætu göngur
fiska frá hlýrri hafsvæðum orðið al-
gengari. Þó er ljóst að kalt árferði að
vetri getur haft alvarleg áhrif á þá
fiska sem hér eru á nyrstu mörkum
útbreiðslusvæða sinna. Þótt sjórinn
við ísland hafi verið hlýr síðustu ár
ef litið er tvo áratugi aftur í tímann,
skal að lokum bent á að tímabilið
1925 til 1965 var hitastig oft með
svipuðu móti og árin 2003 til 2006.
18