Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 21
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
Friðgeir Grímsson
SÍÐMÍÓSEN SETLÖG
VIÐ HREÐAVATN
IBorgarfirði á Vesturlandi eru
varðveitt víðáttumikil setlög
frá síðmíósentíma, um það bil
7-6 milljón ára gömul. Þessar jarð-
myndanir hafa verið nefndar
Hreðavatnssetlögin eða bara Hreða-
vatnslögin. Setlögin eru mjög fjöl-
breytt að útliti og gerð vegna þess
að sum hafa myndast úr rofefnum,
önnur eru gosræn og loks eru setlög
mynduð við starfsemi lífvera. Mark-
mið þessa verks eru að gera grein
fyrir þessum setlögum, rekja mynd-
unarsögu þeirra og túlka helstu um-
hverfisþætti á setmyndunartíman-
um. Setlög í nágrenni núverandi
Hreðavatns voru rannsökuð sér-
staklega. Til þess að greinagóð
mynd fengist af setlögunum við
Hreðavatn var dreifing þeirra kort-
lögð, setlagaeiningum lýst ýtarlega
og snið mæld upp í gegnum jarð-
lagastaflann. Upplýsingar úr ein-
staka jarðlagaopnum voru notaðar
til að tengja saman setlagasyrpur á
svæðinu og þannig fékkst heildar-
mynd af setlögunum umhverfis
Hreðavatn. Út frá dreifingu setlaga-
eininga, samsetningu, þykkt, korna-
stærð, setformum, lit, gerð lagmóta
og öðrum einkennandi þáttum var
hægt að túlka uppruna setlaganna,
helstu ferli sem leiddu til myndun-
ar þeirra og hvaða aðstæður voru
ráðandi í umhverfinu á þeim tíma er
setlögin urðu til. Niðurstöður benda
til þess að fyrir um 7-6 milljónum
ára hafi verið stórt stöðuvatn í ofan-
verðum Borgarfirði, nálægt þeim
stað þar sem nú er Hreðavatn.
1. mynd. ]nrðfræðikort af Vesturlandi og Snæfellsnesi. Sjá má míósenjarðlög (blátt) og
plíósen-pleistósenjarðlög (grátt), ásamt helstu höggunarfyrirbærum, samhverfu, and-
hverfu og dreifingu setlaga, sem móta nágrenni Hreðavatns. Strik og halli er merktur inn,
svo og virkar megineldstöðvar og helstu brotakerfi. (Byggt á Kristjáni Sæmundssyni
1967; Hauki jóhannessyni 1980 og 1982.7M1) - Geological map ofwestern lceland and the
Snæfellsnes Peninsula, showing bedrock geology, Miocene (blue) and Pliocene-
Pleistocene (grey). Tectonic features in the study area are illustrated. Strike and dip, as
weU as central volcanoes, anticlines and synclines are indicated.
Náttúrufræðingurinn 75 (1), bls. 21-33, 2007
21