Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 41

Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 41
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags S Olafur Grímur Björnsson SirGeorge Steuart Mackenzie, Bart. Skotinn Sir George Steuart Mackenzie (1780-1848), 7. barónett af Coul, kom til Islands 1810 ásamt félögum sínum, Henry Holland (1788-1873), nýút- skrifuðum lækni frá Edinborgarhá- skóla, Richard Bright (1789-1858), en hann var þá nýbyrjaður í læknis- fræðinámi þar, og Ólafi Loftssyni, sem numið hafði læknisfræði hjá Tómasi Klog landlækni. Ólafur hafði verið læknir á Suðureyjum (The Hebrides) og meginlandi Skotlands og síðan haldið áfram læknisnámi í Edinborg. Hann var í senn túlkur og leiðsögumaður í ferðinni, en stundum höfðu þeir að auki aðra innlenda fylgdarmenn. Erindið var að ferðast um ísland, kynnast landi og þjóð og þó sérstak- lega jarðfræði landsins eða eins og Sir George orðaði það, ferðin „... was undertaken chiefly in con- sequence of the geological theories which agitated the learned in Edin- burgh at the time, and with the hope of my being able, by observa- 2. mynd. Reykjavík 1810. Teikning Sir Georges Mackenzies úrferðabók hans, Travels in lceland (1811), bls. 82. Náttúrufræðingurinn 75 (1), bls. 41-50, 2007 41

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.