Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 42

Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 42
Náttúrufræðingurinn 2. mynd. Frá Krýsuvík og Brennisteinsfjöllum á Reykjanesskaga. Henry Holland segir í dagbók sinni að leiðangurinn hafi komíð til Krýsuvíkur föstudaginn 25. maí, kl. 5 og þar hafi beðið þeirra miðdegisverður: hrísgrjónagrautur, niðursneitt sauðalæri og riigbrauð. Um Reykjanesskaga fóru þeir gangandi en reiddu farangurinn á hestum og hefur hann verið allnokkur efþetta er hestalest þeirra. Bund- ið hefur verið upp á sex trússhesta og þeir sýnast hafa haft með sér borð og stóla til þess að sitja á. Mackenzie málaði myndina og birt- ist hún í bók hans, Travels in Iceland (1811), bls. 113. tions made in a volcanic country, to settle some of the points in dispu- te".1 Hér átti Mackenzie við deilur neptúnista og plútónista um mynd- un yfirborðs jarðar. Neptúnistar héldu því fram að yfirborðsbergið væri botnfall úr sjó (setlagakenn- ingin) og voru þeir ýmist nefndir eftir sjávarguðinum Neptúnusi eða Werneristar eftir upphafsmanni kermingarinnar, Þjóðverjanum Abra- ham Gottlob Werner (1750-1817). Aðrir töldu að bergið væri mótað af eldi sem brotist hefði út á yfirborði jarðar (eldmótunarkenningin). Þeir voru kallaðir plútonistar eftir guði undirheima, en einnig Huttonistar eftir Skotanum James Hutton (1722-1797) sem hélt fram kenning- unni og hafði búið í Edinborg á þessum tíma. Til Islands fengu félagarnir far frá Straumnesi í Orkneyjum 25. apríl með skipinu Elbe og komu til Reykjavíkur 7. maí. Þeir dvöldu á landinu til 19. ágúst, höfðu aðsetur í Reykjavík (1. mynd) og fóru þrjár meiriháttar könnunarferðir þaðan. Henry Holland hélt dagbók um ferðirnar.2 Fyrst var Reykjanesskagi kannaður. Lagt var af stað gang- andi frá Reykjavík til Hafnarfjarðar 21. maí. Frá Hafnarfirði brugðu þeir sér af leið og heimsóttu Bessastaði. Þá lá leiðin til Helgafells að skoða helli, en svo seinir voru þeir fyrir að gista varð í tjaldi við Kaldá. Þaðan fóru þeir til Krýsuvíkur þar sem hverasvæðið var athugað og sýni tekin, en hverirnir voru það merki- legasta sem þeir höfðu þá séð í ferð- inni. Næst var haldið til Grindavík- ur og þaðan til Keflavíkur. Þeir slepptu Reykjanesi vegna veðurs en ætlunin hafði verið að skoða hveri þar líka. Til baka gengu þeir um Vatnsleysuströnd og Hvassahraun til Reykjavíkur, því hesta notuðu þeir ekki í þessari ferð nema undir farangur (2. mynd). Næsti leiðangur var um Vestur- land. Þann 15. júní lögðu þeir af stað sjóleiðina upp á Kjalarnes en hestar voru sendir landleiðina. Rið- ið var inn Hvalfjörð en á móts við Saurbæ létu þeir ferja sig yfir fjörð- inn. A Innra-Hólmi var gist í þrjár nætur hjá Magnúsi Stephensen, gengið á Akrafjall og safnað sýnum. Til Borgarfjarðar fóru þeir um Skarðsheiði og gistu á Hvanneyri. Afram héldu þeir vestur á Mýrar og Snæfellsnes; gististaðir voru á Svignaskarði, Staðarhrauni, Rauða- mel, Miklaholti og Staðarstað og vöndust þeir á að gista í kirkjum, komust svo að Búðum. Hjá Stapa fóru þeir yfir Kambsheiði til Ólafs- víkur. Holland, Bright og Ólafur gengu á Snæfellsjökul ásamt tveim- ur fylgdarmönnum, en komust ekki á hæsta hnjúkinn (3. mynd). Leiðangurinn hélt svo för sinni áfram og fylgdi norðurströnd Snæ- fellsness til Stykkishólms, en í Stykkishólmi voru fyrirmenn, fakt- orinn Bogi Benedictsen og læknir- inn Oddur Hjaltalín. Holland ræddi 42 i
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.