Náttúrufræðingurinn - 2007, Page 43
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags
lengi á latínu við kollega sinn Odd
og sagði hann vera vel að sér í lækn-
isfræði.” Afram héldu þeir og sðfn-
uðu plöntu- og steinasýnum og þar
á meðal sýnum úr Drápuhlíðarfjalli.
Þeir áttu náttstað í kirkjum á Narf-
eyri og í Snóksdal og fóru þaðan um
Bröttubrekku í Hvamm í Norðurár-
dal og gistu í kirkjunni. Leiðin lá að
Síðumúla, en yfir Hvítá komust þeir
ekki fyrr en niður við Hvítárbakka
og héldu þá til Hvanneyrar. Þeir
hittu Stefán Stephensen amtmann,
sem Holland hældi umfram bróður
hans, etasráðið á Innra-Hólmi. Hol-
land og Mackenzie fóru í Reykholt
og skoðuðu hveri, en mest dáðust
þeir að Deildartunguhver í baka-
leiðinni, stærð hans og hegðun.
Næst var að halda aftur að Innra-
Hólmi, en þar geymdu þeir steina-
safn sitt úr Akrafjalli, og sjóleiðina
fóru þeir til Reykjavíkur og höfðu
verið mánuð í burtu.
Þriðja og síðasta ferðin var um
Suðurland. Hópurinn komst af stað
til Þingvalla 24. júlí, fór í Skálholt og
að Geysi og Heklu og gekk á fjallið.
Lengst komust þeir austur að Hlíð-
arenda í Fljótshlíð. Þar á hjáleigu,
Nikulásarhúsum, bjuggu foreldrar
Ólafs, Loftur Ámundason hrepp-
stjóri og Ingibjörg Ólafsdóttir. Nú
fréttu þeir að skipið sem þeir ætl-
uðu með væri væntanlegt bráðlega
til Reykjavíkur, og þeir hröðuðu sér
í Odda, fóru á Sandhólaferju yfir
Þjórsá til Eyrarbakka, um Þrengslin
til Reykjavíkur og náðu í tæka tíð
briggskipinu Floru, sem flutti
Bretana til Skotlands. Þorvaldur
Thoroddsen hefur ritað um jarð-
fræðilegan árangur þessarar ferðar í
Landfræðissögn sinni.3
Um íslandsferðina sömdu Mac-
kenzie, Holland og Bright ritið Tra-
vels in the Island of lceland dnring the
Summer of the Year MDCCCX, gefið
út og prentað í Edinborg árið 1811
(október).4 Þessi bók er xvii + 491 bls.
í stóru broti (quarto), myndskreytt af
höfundum og sumar myndanna eru
í lit. Aftast er samanbrotið kort af
þeim hluta íslands sem þeir ferðuð-
ust um og sýnir ferðaleiðir þeirra. Sir
George ritaði ferðalýsinguna en
studdist við dagbækur Hollands.
Einnig ritaði hann um steinafræði,
landbúnað og verslun Islendinga.
Henry Holland er höfundur kaflans
um sögu og bókmenntir þjóðarinn-
ar, skólahald og menntun í landinu,
lög og stjórnmál, trú og sjúkdóma. í
bókinni er kafli sem Richard Bright
samdi um dýra- og grasafræði
íslands og þar er líka registur um
íslenskar jurtir eftir náttúrufræðing-
inn William Jackson Hooker og veð-
urathugunartöflur.
Bókin er vandað verk og var dýr
(kostaði 2 pund, 12 shillinga og 6
pence eintakið), en samt seldist hún
upp á 6 mánuðum og var strax gef-
in út aftur í Edinborg 1812 (apríl),
allnokkuð endurskoðuð.5 Vinsam-
legur ritdómur birtist þá (1812) í Ed-
inburgh Revieiv og langur úrdráttur
og ritdómur í Dansk Litteratur-
Tidende sama ár.'1 Enn endurskoð-
aðri og stytt útgáfa, tveggja dálka,
prentuð með smáu letri án mynda,
kom út í Edinborg 1842 og nefndist
ritið þá aðeins Travels in Iceland. Það
var síðan endurprentað þar árið
1851.7 Af þýðingum er kunnugt um
þýska útgáfu sem prentuð var í
Weimar 1815 (Verlage des Landes-
Industrie-Comptoirs) og var verkið
gefið þar út í heild ásamt kortum en
3. mynd. Teikning Richards Brights afferðalöngunum á Snæfellsjökli, 3. júlí 1810. ídag-
bók Hollands er sagt að Mackenzie hafi ekki farið íferðina á jökulinn, en Henry Holland,
Richard Bright og Ólafur Loftsson fóru og höfðu með sér tvo innlenda fylgdarmenn, einn
sem komið hafði meðþeimfrá Reykjavík og annan sem var staðkunnugur maður úr Ólafs-
vík. Ætla má að þeir séu allir á myndinni, en ekki er vitað hvort Ólafur sé þarna í leið-
sögumannshlutverki og Holland og Bright hlýði á, annar þeirra með bók í hendi. Mynd-
in erfengin úr Travels in Iceland (1811), bls. 206.
a Orðrétt segir Holland um Odd Hjaltalín: „His medical information
is good, & he has communicated some valuable facts respecting the
diseases prevalent in Iceland ..." og bætti svo við að það væri „... &
melancholy to see a man, whose acquirements might have enabled
him to rise in the world, unwillingly forced into this remote situ-
ation, where his best exertions are scarcely competent to the liveli-
hood of himself & his family ...".29
43