Náttúrufræðingurinn - 2007, Síða 60
Náttúrufræðingurinn
NÁTTÚRUSTOFUR
1. mynd. Staðsetning verkefna sem unnin hafa verið á eða í tengslum við náttúrustofur
á íslandi.
Á landinu eru starfræktar sjö nátt-
úrustofur og var sú fyrsta stofnsett
árið 1995. Náttúrustofur starfa
samkvæmt lögum um Náttúru-
fræðistofnun íslands og náttúrustofur
nr. 60 frá 1992, með síðari breytingum
frá árinu 2002. Um hlutverk náttúru-
stofa segir í lögunum:
a. að safna gögnum, varðveita heimildir
um náttúrufar og stunda vísindalegar
náttúrurannsóknir, einkum í peim lands-
hluta þar sem náttúrustofan starfar,
b. að stuðla að æskilegri landnýtingu
og náttúruvernd og veita fræðslu um
umhverfismál og náttúrufræði og að-
stoða við gerð náttúrusýninga,
c. að veita náttúruverndarnefndum á
starfssvæði stofunnar upplýsingar og
ráðgjöfá verksviði stofunnar samkvæmt
ákvörðun stjórnar náttúrustofu hverju
sinni,
d. að veita ráðgjöf, sinna rannsóknum
og sjá um vöktun gegn greiðslu á
verksviði stofunnar að beiðni sveitar-
félaga, ríkis eða stofnana peirra, einstak-
linga, fyrirtækja eða annarra aðila,
e. að annast almennt eftirlit með nátt-
úru landsins, sbr. 7. gr. náttúruvernd-
arlaga, nr. 44/1999, einkum í peim
landshluta par sem náttúrustofan
starfar.
Rekstur náttúrustofa er í höndum
þeirra sveitarfélaga sem gert hafa
samning við Umhverfisráðuneytið.
Ríkissjóður leggur árlega fé til
stofanna gegn mótframlagi sveitar-
félaganna.
Fyrsta stofan var Náttúrustofa
Austurlands og hóf hún störf á
Neskaupstað árið 1995. Fleiri
fylgdu í kjölfarið og árið 2003 var sú
sjöunda stofnuð (1. tafla).
Hugmyndin að baki náttúru-
stofum er að færa þekkingaröflun í
náttúrufræðum út til landsbyggðar-
innar, þar sem talið er að betur
mætti sinna þeim málum með
starfsfólki á staðnum. Einnig komu
málefni atvinnuþróunar við sögu,
en talið var að með stofnun nátt-
úrustofa mætti fjölga mennta-
störfum úti á landsbyggðinni. Þetta
hefur gengið eftir og eru starfsmenn
stofanna nú ríflega 30 auk fjölda
sumarfólks. Verkefnin eru af
ýmsum toga og ná yfir landið allt
eins og sjá má á 1. mynd. Auk fjöl-
breyttra verkefna á sviði nátt-
úrufræða og umhverfismála hafa
stofurnar tekið virkan þátt í fræðslu
og menntunarmálum og má sem
dæmi nefna að nú eru í gangi ein sjö
doktorsverkefni í tengslum við stof-
urnar auk fjölda meistaranáms-
verkefna.
Stofnár Aðsetur Rekstrarsveitarfélög Fjöldi starfsmanna
Náttúrustofa Austurlands 1995 Neskaupstaður / Egilsstaðir Fjarðarbyggð 8
Náttúrustofa Suðurlands 1996 Vestmannaeyjar Vestmanneyjabær 4
Náttúrustofa Vestfjarða 1997 Bolungarvík Bolungarvík 5
Náttúrustofa Vesturlands 1999 Stykkishólmur Stykkishólmsbær 7
Náttúrustofa Norðurlands vestra 2000 Sauðárkrókur Skagafjörður og Akrahreppur 5
Náttúrustofa Reykjaness 2000 Sandgerði Sandgerðisbær og Grindavíkurbær 4
Náttúrustofa Norðausturlands 2003 Húsavík Norðurþing og Skútustaðarhreppur 3
1. tafla. Yfirlit yfir pær sjö náttúrustofiir sem starfa samkvæmt lögum um Náttúrufræðistofnun íslands og náttúrustofur nr. 60 frá 1992.
60