Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 63

Náttúrufræðingurinn - 2007, Qupperneq 63
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Kristín Svavarsdóttir SKÝRSLA STJÓRNAR HINS ÍSLENSKA NÁTTÚRUFRÆÐIFÉLAGS FYRIRÁRIÐ 2003 FÉLAGAR í árslok 2003 voru félagar í Hinu íslenska náttúrufræðifélagi, sem jafnframt eru áskrifendur að Nátt- úrufræðingnum, 1200 talsins og skiptust þeir þannig: 10 heiðurs- félagar, 7 kjörfélagar, 8 ævifélagar, 938 almennir félagar innanlands, 128 stofnanir innanlands, 38 félagar og stofnanir utanlands, 55 skóla- félagar og 16 með hjónaáskrift. í ársbyrjun voru félagar 1185 og voru nýskráningar á árinu 55, en á móti skráðu 20 manns sig úr félag- inu, 9 létust á árinu og 11 voru tekn- ir af skrá af öðrum ástæðum, alls 40 félagar. Af nýjum félögum voru 17 námsmenn eða 31% nýskráðra. STJÓRN OG STARFSMENN Arið 2003 var stjórn Hins íslenska náttúrufræðifélags þannig skipuð: Kristín Svavarsdóttir formaður, Helgi Torfason varaformaður, Kristinn J. Albertsson gjaldkeri, Hilmar J. Malmquist ritari, Drop- laug Ólafsdóttir, Esther Ruth Guð- mundsdóttir og Helgi Guðmunds- son meðstjórnendur. Skoðunar- menn reikninga voru Kristinn Einarsson og Tómas Einarsson, varamaður þeirra var Arnór Þ. Sig- fússon. Útbreiðslustjóri félagsins var Erling Ólafsson en hann sá um félagatalið og útsendingu Náttúru- fræðingsins og Fréttabréfsins. Alfheiður Ingadóttir var ritstjóri Náttúrufræðingsins. Fréttabréfið kom út þrisvar sinn- um á árinu. Enn er unnið að því að minnka kostnað við prentun og útsendingar þess með því að safna netföngum félagsmanna til að senda megi ritið rafrænt til net- tengdra félaga. Netföng í félaga- skránni eru enn innan við helming félagsmanna. Á árinu keypti félagið lénið hin.is og er undirbúnings- vinna við endurskoðun og opnun nýrrar heimasíðu félagsins hafin. Átta stjórnarfundir voru haldnir á árinu. Nefndirog RÁÐ Nefndarstörf. Hollustuháttaráð. Skipað var í ráð- ið til fjögurra ára haustið 2002 og f.h. HIN situr Hákon Aðalsteinsson og Margrét Hallsdóttir til vara. Dýravemdarráð. Nýtt dýravernd- arráð var skipað í byrjun ársins 2003 og fyrir hönd HÍN situr Arnór Þ. Sigfússon í ráðinu en hann er jafn- framt formaður þess. Umhverfisráðuneytið hefur í nokkrum tilvikum þann hátt á við skipun í nefndir á sínum vegum að kalla eftir einum fulltrúa fijálsra fé- lagasamtaka (þar með talið HÍN) og á árinu störfuðu tvær slíkar nefndir. Sigrún Helgadóttir líffræðingur sat sem fulltrúi félaganna í nefnd til ráð- gjafar við undirbúning og stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs. I nefnd til undirbúnings Umhverfisþingi 2003 sat Tryggvi Felixson fyrir hönd félag- anna. Aðalfundur Aðalfundur fyrir árið 2003 var hald- inn laugardaginn 28. febrúar 2004 kl. 14 í fundarsal Náttúrufræðistofu Kópavogs, Kórnum. Fundarstjóri var kosinn Haraldur Rafn Ingvason og fundarritari Helgi Torfason. Fundinn sátu 12 manns. Formaður flutti skýrslu stjórnar og gjaldkeri kynnti endurskoðaða reikninga félagsins og voru þeir síðan samþykktir. Kristín Svavarsdóttir var endur- kjörin formaður félagsins. Úr stjórn- inni áttu að ganga Droplaug Ólafs- dóttir, Helgi Guðmundsson og Kristinn J. Albertsson og gáfu þau öll kost á sér aftur og voru endurkjörin. Hilmar J. Malmquist gerði grein fyrir tveimur ályktunum sem stjórnin lagði fyrir fundinn og voru þær samþykktar. 1. Náttúrulnís (náttúrumiujasafn): „Aðalfundur Hins íslenska nátt- úrufræðifélags (HÍN), haldinn 28. febrúar 2004 í Kópavogi, ítrekar fyrri ályktanir aðalfunda HIN frá 1. mars 2003,2. mars 2002,24. febrúar 2001, 26. febrúar 2000, 27. febrúar 1999, 17. febrúar 1996, 11. febrúar 1995 og 29. febrúar 1992 um mál- efni Náttúruhúss (náttúruminja- safns) á landsvísu í höfuðborg ís- lands, Reykjavík. HÍN harmar hve tregt hefur gengið að koma þessu brýna máli heilu í höfn og hvetur hlutaðeigandi aðila til að gera gangskör að því að efna hið fyrsta á myndarlegan hátt til sýningar- og kennslusafns í Reykjavík, sem styðjist við vísindasafn Náttúru- fræðistofnunar íslands. Jafnframt verði eflt sýningar- og kennslusafn um náttúrufræði á Akureyri á sama grunni." 2. Náttúruvemdaráætlun: „Aðalfundur Hins íslenska nátt- úrufræðifélags (HÍN), haldinn 28. 63
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.