Náttúrufræðingurinn - 1965, Qupperneq 14
8
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN
ber verulega á milli er liturinn, sem á að vera svartur til olítubrúnn.
íslenzku plönturnar eru hins vegar dökkblágrænar í fyrstu en verða
gulgrænar og að lokum gulbrúnar eða olífubrúnar. Einnig eru ís-
lenzku eintökin að jafnaði minni, varla yiir 1,5 cm á lengd, en oft
aðeins 1 cm. I Ivorttveggja, litur og stærð, eru hins vegar allbreytileg
meðal Lemaneanna ogvarla gerandi mikið úr þeim mismun. Gunnar
hefur sennilega ekki hitt á fyrsta vaxtarstig plöntunnar og því sleppt
að geta um græna litinn. Á meðan ekki hefur iundizt annað betra
nafn á íslenzku tegundina tel ég )>ví rétt að kalla hana Lemunea
condensalu Israelson. Ekkert iiefur fundizt hér á landi, sem líkist
hinni eiginlegu L. flnviatilis, og bendir það til þess, að þessar tvær
tegundir séu allvel aðgreindar, og L. condensata eigi fullan rétt til
að kallast sérstiik tegund. Hitt er svo annað mál hvort tegundin er
raunvertdega ný, eða hefur verið lýst áður undir öðru nafni. Sjálfur
bendir Gunnar á tegundina L. hispanica Budde (1929), sem virðist
hafa margt sameiginlegt með L. condensata. Ennfremur má nefna
tegundirnar L. subtilis Agardh, og L. borealis Atkins. (1904). Þarfn-
ast þessar tegundir allar nánari samanburðar.
Eins og áður getur er Lemanean fyrst fundin hér á landi í Hrafns-
gerðisá, á efri hluta Fljótsdalshéraðs, 1954. Síðan hef ég fundið liana
í Þverá (Munkaþverá), í Eyjafirði (19(52), í Heiðará á Öxnadalsheiði
(1963), og í Hvassá í Norðurárdal, Borgarfirði vestra. Á öllum þess-
um stöðum er plantan svipuð að stærð og vaxtarlagi og þekur jafnan
steinana og klettana forstreymis. Þá hef ég lundið Lemaneuna í
nokkrum lækjum í grennd við Akureyri. Er hún þar smávaxnari og
fíngerðari, og vex oftast í fossum eða í nánd við þá. Má líta á þetta
sem lendisalbrigði (Standortsvarietát) af tegunclinni.
Eftir þessum fundarstöðum að dæma, virðist tegundin vera nokk-
uð útbreidd um landið, og er sennilega algeng víðast hvar.
Hvergi finnst hennar þó getið í ritum um íslenzka vatnaþörunga,
en um þá hefur reyndar lítið verið skrifað. Má það nú vart dragast
lengur, að þessum hluta íslenzku l'lórunnar verði gerð viðunandi skil.
HEIMILDARRIT - RÉFÉRENCES
Atkinson, G. F. (1890). Monograph of the Lemaneaceae of the United-States.
Ann. of Botany 4.
Börgesen, F. (1898) Nogle Ferskvandsalger fra Island. Bot. Tidsskr. Bd. 22.
Boye-Peterscn, Joli. (1936) On some algae írom Grímsey. Bot. Tidsskr. Bd. 43.