Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 23

Náttúrufræðingurinn - 1965, Page 23
NÁTT Ú RUFRÆÐINGURINN 17 veldur of hröðum efnaskiptum, sjúklingurinn megrast og verður ör í skapi, með útstæð augu. Hins vegar veldur skortur á skjaldkirtil- hormóni hægum efnaskiptum, fitusöfnun og andlegum sljóleika. Menn, sem eru án skjaldkirtilhormóns frá fæðingu, verða vanskap- aðir dvergar með mjög skertum andlegum hæfileikum. Fimmta framhlutahormónið stjórnar innkirtilstarfsemi nýrna- hettubarkar. Nýrna- hettubörkur gefur frá sér nokkur hormón, sem stýra mikilvægum ]j;í tt- um lífsstarfseminnar: sykurefnaskiptum, salt- jafnvægi og þroska band- vefs. Enginn getur lifað nema mjög stuttan tíma án nýrnahettubarkar, enda hefur röskun á barkarstarfseminni jafn- an í för með sér alvarlega sjúkdóma. Hið sjötta og síðasta hormónið, sem þekkt er með vissu úr framhluta heiladinguls, stýrir vexti. Skortur á þessu hormóni á vaxtarskeiði manns veldur dvergvexti, en offramleiðsla risavexti. Bæði dvergar og tröll með truflaðan heiladingul hala eðlilega líkamsstarfsemi að flestu leyti öðru en að vextinum lýtur, til dæmis eðlilega greind. Til er og, að offramleiðsla vaxtarhormónsins hefst ekki fyrr en eðlilegu vaxtarskeiði mannsins er lokið. Þá eru flest bein líkamans full- mótitð og geta ekki vaxið frekar, nema bein handa og fóta vaxa, svo og andlitsbeinin, einkum kjálkabein og önnur niðurandlits- bein. Sömuleiðis bognar hryggurinn. Bretar hafa lýst þessari van- sköpun sem „a reversion to the gorilla type“, eða alturhvarfi til górillugervis, en á vísindamáli kallast luín akromegalia. Akromegalíu fylgir oft sykursýki: sykurmagnið í blóðinu hækkar og truflanir verða á sykurefnaskiptum. Venjulega orsakast sykursýki I. mynd. Risi, 13i/2 árs, með ofvirkan fram- hluta heiladinguls, við hlið 9 ára bróður síns og föður, sem er frekar stór vexti.

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.