Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 24

Náttúrufræðingurinn - 1965, Side 24
NÁTT Ú R U F R ÆÐINGURINN 18 af skorti á insúlíni, hormóni, sem til verður í briskirtli, en vaxtar- hormónið virðist vinna gegn insúlíni, svo að ofmyndun vaxtarhor- móns hefur sömu áhrif og insúlínþnrrð. Ekki orsakar ofmyndun vaxtarhormóns þó sykursýki nema í fullorðnum mönnum, og er engin skýring til á því, hvers vegna þessi áhrif koma aldrei fram á börnum eða unglingum á vaxtarskeiði. Heiladingulhormónin eru gerð úr aminosýrum, eins og eggja- hvítuefni. Þó eru eggjahvítuefnin jafnan mun flóknari að gerð en hormónin. Vís- indamenn og lyf jaframleiðendur geta framleitt sum Jieiladingulhormón, en <">nn- ur eru of flókin eða of lítt rannsökuð til að það hafi enn lánazt. Flest hormón eru eins eða áþekk í mönn- um og samsvarandi hormón i öðrum spen- dýrum, svo að liægt er að vinna hormón úr dýrum til að lækna hormónakvilla í mönnum. Þetta á ekki við um vaxtarhor- món heiladinguls, því að vaxtarhormón dýra hafa ekki álnif á vöxt manna, enda talsverður efnafræðilegur munur á vaxtar- hormónum eftir tegundum. Ekki hefur vísindamiinnum heldur teki/.t að framleiða vaxtarhormón, og eru því miklir örðug- leikar á að Iækna dvergvöxt, sem orsakast af skorti á vaxtarhormóni úr heiladingli. Hvernig temprar líkaminn hormónaframleiðslu heiladinguls? Áð- ur er drepið á, hvernig vatnsmagn líkamans hefur áhrif á magn hor- móns, er berst frá afturhluta heiladinguls, sömideiðis, hvernig barn, er sýgur móður sína, losar um hormón Irá afturhluta heiladinguls hennar fyrir tilstilli heilans. Um framhlutahormónin, þau er stjórna kynkirtlum, skjaldkirtli og nýrnahettuberki, er það vitað, að starf- semi þessara innkirtla hefur áhrif á myndun viðeigandi heiladingul- hormóna. Ef til dæmis nýrnahettubörkur gefur frá sér of lítið magn hormóna, eykst framleiðsla heiladingulhormóns þess, er iirvar starf- semi barkarins. Offramleiðsla barkarhormóna dregur hins vegar úr myndun heiladingulshormónsins. Þessi temprun virðist verða fyrir tilverknað heilans. Talsvert ligg- 2. mynd. Dvergur, 9l/ó árs stúlka með truflaðan fram- hluta heiladinguls. ViS hlið hennar er eðlilegur drengur, jafnaldri hennar.

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.